„Þetta lítur ekki vel út,“ segir Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur sem hefur sérhæft sig í sögu verkalýðshreyfingar, um stöðuna í ASÍ eftir atburði síðustu daga. Sumarliði lagði mat á stöðuna í beinni útsendingu í sjónvarpsfréttum í kvöld.
„Ef þessi þrjú eða fjögur félög fara út úr sambandinu þá mundi ég nú álykta að það yrði að mestu óstarfhæft. Þá eru ekki eftir nema kannski þriðjungur núverandi félaga innan sambandsins og það er staða auðvitað sem ekki gengur,“ segir hann og vísar til VR og Eflingar og verkalýðsfélaga Akraness og Grindavíkur.
En á þetta sér einhver fordæmi? „Ekki ef maður horfir til síðustu hálfrar aldar. Það þarf að fara mjög langt aftur til að finna sambærilega stöðu,“ segir hann.
Erfitt sé að spá fyrir um hvað gerist næst. „Tapararnir í þessari baráttu eru almennt launafólk og ég tel að forystufólki verkalýðshreyfingarinnar beri skylda til að ná samstöðu um störf hreyfingarinnar,“ segir Sumarliði Ísleifsson.
Einnig var rætt við Sumarliða í Speglinum um átökin á Alþýðusambandinu og má heyra það viðtal í spilaranum að neðan.