Valur tekur þátt í Evrópudeildinni í handbolta í ár en dregið var í riðlakeppnina í dag. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður liðsins og íslenska landsliðsins, segir það alls ekki ódýrt fyrir félagið að taka þátt í keppni sem þessari og leikmenn hafi staðið í ýmsu til að safna pening fyrir verkefninu.

Valsmenn drógust í B-riðil og mæta bæði Kristjáni Erni Kristjánssyni og félögum hans í PAUC frá Frakklandi og Flensburg, liði Teits Arnar Einarssonar í Þýskalandi. Þá eru Svíþjóðarmeistarar Ystads í riðlinum og loks Benidorm frá Spáni og Ferencváros, FCT, frá Ungverjalandi. Ferðalögin á velli þessara liða ættu að vera þæginleg og Björgvin segir það skipta öllu máli fyrir leikmenn þegar kemur að álagi, fyrir stuðningsfólk sem vilji koma með og fyrir fjárhag félagsins. 

„Það kostar ógeðslega mikið af peningum að vera með í þessari Evrópukeppni, deildin sjálf er að safna fyrir þessu, leikmennirnir sjálfir eru að safna fyrir þessu. Við erum búnir að vera að selja alls konar hluti okkar nánustu, við erum að skipta um perur í sólbaðsstofunni Smart og við erum að gera ýmislegt, við erum í Hörpu við erum að gera alls konar hluti til þess að eiga efni á þessu.“

Varðandi mótherjana sjálfa segir Björgvin þá vera bland í poka en í heild sinni sé drátturinn skemmtilegur. „Þegar þú horfir á lið eins og Flensburg og PAUC þá eru þetta bara stórkostleg lið og lið sem ætla að vinna þessa keppni. Það kannski er ekki mælisteinnin okkar en þar viljum við passa okkur að vera ekki fallbyssufóður og sýna hvað við getum.“ Valsliðið sé með mikla breidd og geti spilað á mörgum mönnum, dreift álaginu í deildinni og vonandi strítt hvaða liði sem er þegar kemur að Evrópukeppninni.

„Okkur langar að gera skemmtilega leiki fyrir okkur, fyrir Val, fyrir íslenskan handbolta. Öll stig sem við náum í, allt sem við gerum er bara góð auglýsing fyrir handboltann, góð auglýsing fyrir hin liðin sem eru í Evrópukeppninni. Við viljum bara gera vel fyrir íslenskan handbolta í heildina.“ 

Björgvin segir undirbúninginn fyrir þetta stóra tímabil hafa hafist strax í sumar. „Snorri píndi okkur vel, við lifum enn þá á því, við erum í flottu formi.“ Liðið hefur unnið alla leiki sína í úrvalsdeildinni til þess á tímabilinu og Björgvin segir það markmiðið að halda áfram á sömu braut. „Frábært að fá svona mótherja inn á milli til að fá gulrót en við þurfum líka að átta okkur á því að við erum í þessari keppni af því að við erum bestir hérna heima, við þurfum að halda því þannig, við ætlum að halda áfram að vera bestir.“

Viðtalið við Björgvin Pál má sjá í heild sinni hér efst á síðunni. Fyrsti leikur Vals í Evrópudeildinni verður 25. október gegn PAUC á Hlíðarenda.