„Ég er tilbúinn,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sem lætur af störfum í dag. Hann segir vel við hæfi að þríeykið stofni matarklúbb. Hann ætlar ekki að skrifa bók en tekur þó margar minnisbækur með sér af skrifstofunni.

Þórólfur var að klára að ganga frá skrifstofunni sinni í Katrínartúninu eftir um sjö ár sem sóttvarnalæknir þegar fréttastofa hitti á hann. „Mér líður bara vel. Þetta er tímamótadagur fyrir mig og aðra. Ég er tilbúinn.“

Hann segir að hann muni líklega ekki sakna faraldursins. „Þetta er svolítið skrítið þetta ástur-haturssamband við faraldurinn. Það er engin sérstök ást á þessum faraldri en þetta er það sem maður hefur undirbúiið alla sína starfsævi, að eitthvað svona gerist.“