Tugir hesta sem virðast aðframkomnir úr hor hafa vart fengið að fara út úr húsi í sumar, að sögn hestamanns í Borgarnesi. Ítrekað hefur verið tilkynnt um aðbúnað dýranna.
Hrossin þrjátíu eru yfirleitt lokuð inni en hafa sést endrum og eins í gerði í sumar. Steinunn Árnadóttir sem heldur sjálf hesta í hesthúsahverfinu í Borgarnesi segir stöðuna á þeim slæma.
„Þeir eru grindhoraðir. Þeir fá ekki að fara út, þeir sjá ekki sólarljós, þeir hafa ekki bitið grænt gras. Meðal annars er þarna folaldsmeri sem ég sá í vor, sennilega í enda maí, hún er búin að vera innilokuð síðan þá.“
Á ljósmyndum má sjá rifbein dýranna greinilega og virðist líkamsburður óheilbrigður. Þetta sést glögglega þegar myndir eru bornar saman við kvarða Matvælastofnunar, þar sem segir að sjáist öll rifbein og hestur hengi haus teljist hann horaður eða grindhoraður.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var staða hestanna fyrst tilkynnt í lok júní og í júlí var ítrekað reynt að ná í búfjáreftirlitsaðila sem hvorki svaraði né hringdi til baka. Við síðustu mánaðamót var hringt í neyðarlínuna vegna hestanna og kom þá lögreglumaður á staðinn. Matvælastofnun og héraðsdýralæknir vildu ekki tjá sig um málið þegar leitað var eftir því.
Hestunum mögulega ekki viðbjargandi
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa viðbrögð eftirlitsaðila við ábendingum verið lítil sem engin en staða dýranna ku vera svo slæm að þeim er vart hugað líf.
„Sennilega er þeim ekki viðbjargandi. Það er ekki hægt að setja þessar skepnur út á tún núna, nú er komið haust og kuldi og þau hafa ekki verið úti í allt sumar. Það þarf bara að lina þeirra þjáningar,“ segir Steinunn.
Umráðamaður hestanna svaraði ekki fyrirspurnum fréttastofu. Fæst þeirra sem fréttastofa hefur talað við hafa viljað koma fram undir nafni. Steinunn segir að umráðamaður hestanna hafi áður ógnað fólki, meðal annars með skotvopnum. Sá hinn sami haldi þá bæði kindur og kýr annars staðar í Borgarfirði þar sem staðan sé sú sama og að kindur hafi ekki sést úti í þrjú ár.