Tónlistarkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir frá Sandgerði hefur gefið út aðra sólóplötu sína sem heitir Lipstick On og fylgir eftir plötu hennar Myndalbúmið sem kom út árið 2020. Nýja platan sem var unnin á eins árs tímabili inniheldur poppskotið valdeflandi rokk þar sem undirmeðvitundin fær að ráða ferðinni og spilagleðin er allsráðandi.
Á Lipstick On eru níu frumsamin lög með textum á ensku, þar á meðal tveir dúettar, Baby You Are Bad News ásamt Soffíu Björgu og Shower Shock ásamt Halla Valla. Lögin á plötunni urðu til í miklu flæði á eins árs tímabili, en yrkisefnið er allt frá varalituðum fingurkossum úr geimnum til rafmagnaðra sturtuferða.
Fyrsta lagið sem kom út var The Key to My Future Heart sem var gefið út í september 2021 og var notað sem stef í hlaðvarpinu Kennarastofan og í kjölfarið á því kom lagið Cats and Cassettes í júní 2022.
Fríða Dís Guðmundsdóttir semur lög og texta Lipstick On ásamt því að útsetja, sjá um listræna stjórnun, syngja aðalrödd og leika á bassa. Með hanni í þessu verkefni voru Smári Guðmundsson sem sá um upptökustjórn, útsetningar og spilaði á rafmagnsgítar, baritóngítar og kassagítar, Halldór Lárusson sá um trommur og áslátt, Stefán Örn Gunnlaugsson sá einnig um upptökustjórn og hljóðblöndun, lék á píanó, hljómborð og samdi bakgrunns kvikmyndatónlist í laginu Guidelines for Dreamers, Soffía Björg Óðinsdóttir syngur aðra aðalröddina í Baby You Are Bad News ásamt því að syngja raddir í fleiri lögum. Hallbjörn Valgeir Rúnarsson syngur í Shower Shock, María Rún Baldursdóttir, Viktor Atli Gunnarsson, og Ásbjörg Jónsdóttir sungu raddir og Jóhannes Haukur Jóhannesson sér um leik í laginu Guidelines for Dreamers en Sigurdór Guðmundsson sá um hljóðjöfnun.
Plata vikunnar að þessu sinni er platan Lipstick On sem Fríða Dís var að senda frá sér. Hún verður spiluð í heild sinni eftir tíu fréttir í kvöld á Rás 2 ásamt kynningum Fríðu Dís á tilurð lagana.