Stefáni Sveinssyni sjómanni á Skagaströnd brá í brún er hann var við veiðar norður af Íslandi, á Hornbanka, þegar risastór hákarl kom upp að bátnum.
Stefán var við strandveiðar á Hrund HU og grunar að hákarlinn hafi fundið lykt eða bragð af síld sem hrundi út úr fisknum sem hann var að veiða. „Hann var vinalegur og forvitinn,“ segir Stefán í samtali við fréttastofu.
Aðspurður um viðbrögð sín segir Stefán að sér hafi brugðið í fyrstu. „Hákarlinn var í stærri kantinum, allt að 10 metra langur, svipað langur og báturinn,“ segir Stefán þegar fréttamaður bað hann að giska á stærð dýrsins.
Stefán segir ekki algengt að rekast á svona stóran hákarl en sagði þetta vera hinn dæmigerða grænlandshákarl. Hann tók myndbandið hér að ofan.
Fréttastofu barst ábending um að þetta væri sennilega frekar beinhákarl en grænlandshákarl.
Fréttin hefur verið uppfærð.