Eldar lýstu upp hafnarborgina Latakia í Sýrlandi þegar flugskeytaárás var gerð á hafnarsvæðið í nótt. Sýrlendingar saka Ísraelsmenn um að hafa verið að verki. Þeir hvorki játa því né neita.

Sýrlenska ríkisfréttastofan SANA greinir frá því að árásin hafi verið gerð á fjórða tímanum í nótt. Flugskeytum hafi verið skotið á gámasvæði hafnarinnar. Miklar sprengingar heyrðust um alla borg og nágrenni hennar og eldar lýstu upp hafflötinn.

SANA hefur eftir heimildarmanni í hernum að árásin hafi valdið verulegu tjóni. Stjórnvöld saka Ísraelsmenn um að hafa verið að verki og að þetta sé í annað sinn í mánuðinum sem flugskeytum sé skotið á Latakia. Talsmaður Ísraelshers vildi hvorki neita því né játa þegar málið var borið undir hann. Það væri ekki venja hersins að tjá sig um fréttir erlendra fjölmiðla.

Að sögn sýrlensku fréttastofunnar var vélaolía og varahlutir í bíla og önnur farartæki í gámunum sem sprungu í nótt. Sýrlenska mannréttindavaktin segir það ekki rétt. Í þeim hafi verið vopn og önnur hergögn, að líkindum frá Íran.

Mannréttindavaktin segir að Ísraelsher hafi það sem af er ári gert um það bil þrjátíu árásir á skotmörk í Sýrlandi. Þær hafi orðið 130 manns að bana, fimm almennum borgurum og 125 bardagamönnum, hliðhollum sýrlenska hernum.