Ákvörðun Landsvirkjunar um að skerða raforkuafhendingu til stórnotenda hefur mikil áhrif á rekstur gagnavera. Nokkur þeirra hafa þegar þurft að skerða þjónustu vegna þessa.
Í gær tilkynnti Landsvirkjun að skerða þyrfti nú þegar afhendingu á raforku til stórnotenda vegna raforkuskorts og takmarkaðrar flutningsgetu. Meðal þeirra eru fiskimjölsverksmiðjur, gagnaver og álver, en þessi starfsemi hefur samið um skerðanlega orku að hluta við Landsvirkjun.
Tilkynnt hafði verið um að afhending raforku yrði skert í janúar, en tíðindin í gær komu á óvart. „Í fyrsta lagi er bagalegt hversu skammur fyrirvari er á þessu. Það lá fyrir að það yrðu skerðingar í byrjun næsta árs en þetta kemur svolítið bratt að. Gagnaversiðnaðurinn er sérstakur að því leyti að samkeppnin er gríðarleg alþjóðlega,“ segir Sigríður Mogensen sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, SI.
Og áhrifanna er strax farið að gæta, að sögn Sigríðar. „Við vitum um tilfelli þar sem íslensk gagnaver hafa þurft því miður að loka á þjónustu við viðskiptavini í dag; snemma í morgun eftir að þessar upplýsingar lágu fyrir. Það þýðir tekjumissi strax og við skulum hafa í huga í þessu samhengi að gagnaversiðnaðurinn skapar að minnsta kosti 20 milljarða í gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið árlega.“
Sigríður segir að áhrif þessa gætu verið langvinn. Viðskiptavinir gætu farið að efast um raforkuöryggi hér á landi og erfiðara gæti orðið að afla nýrra viðskipta. „Aðalatriðið er það að þetta er ákveðið tjón fyrir hagkerfið og við þurfum að draga þann lærdóm af þessu að horfa lengra fram í tímann.“