Ný sprunga hefur opnast norðan við Geldingadali og verið er að rýma svæðið. Vefmyndavél RÚV hefur verið snúið að nýju sprungunni, sem er um 500 metra löng. Sigurður Bergmann, aðalvarðstjóri og vettvangsstjóri í Geldingadölum, segir ljóst að fólk geti verið í hættu. Allt tiltækt viðbragð hefur verið kallað til og þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur yfir svæðið.

„Við getum aldrei ákveðið fyrirfram hvernig þessi gos hegða sér. Þetta er ákveðin stigmögnun en þetta virðist ekki vera mikið efni sem kemur þarna upp, en þetta gæti verið einhver aukning á gosinu. En það sjást engin merki um að það sé að draga úr þessu. Þessi atburðarás er alls ekki búin,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, eldfjallafræðingur.

„Við fengum tilkynningar frá flugmönnum í Keflavík um að flugmenn hefðu séð þessa nýju sprungu. Hún er um 500 metra norðaustur af nyrðri gígnum,“ segir Salome Jórunn Bernharðsdóttir hjá Veðurstofu Íslands. 

Á vefmyndavélinni má sjá að enn er fólk á svæðinu, sumir hafa hlaupið að nýju sprungunni, og björgunarsveitarfólk á eftir. 

Fréttin verður uppfærð.