Grindavík er sá bær sem er næst eldgosinu sem hófst í gærkvöld og svo virðist vera sem Grindvíkingar séu nokkuð rólegir yfir stöðunni. Mikil skjálftavirkni mældist við Fagradalsfjall síðustu þrjár vikur og vona margir Grindvíkingar að nú þegar eldgos sé byrjað fari skjálftunum að linna. Kristín Sigurðardóttir fréttamaður og Vilhjálmur Þór Guðmundsson myndatökumaður hafa verið í Grindavík í morgun og rætt við fólk þar.

Bjarki Sigmarsson segir það vera ákveðinn létti að gosið sé loksins byrjað. „Vonandi fer skjálftunum að linna en við höfum ekki fundið fyrir þeim í þrjá, fjóra sólarhringa að minnst kosti,“ segir hann. Dóttir Bjarka sagði honum í gærkvöld að það væri farið að gjósa en hann sagði henni að þetta væru örugglega bara ljósin frá gróðurhúsi fyrir ofan bærinn. Stuttu síðar sá hann að dóttirin hafði rétt fyrir sér. 

Þórunn Erlingsdóttir er nokkuð róleg yfir stöðunni og segir að svo virðist sem þetta sé þægilegt og gott gos, langt í burtu frá byggð. „Þannig að við erum bara örugg, held ég,“ segir hún. Þegar fréttirnar af gosinu bárust var hún nýbúin að segja syni sínum að það hefði ekki komið jarðskjálfti alla vikuna. Hann spurði þá hvort það væri ekki að koma eldgos. „Ég sagði nei, nei en svo kom bara eldgos. Þannig að þetta var nokkuð skondið í gær, bara.“

Hafþór og Sigríður kipptu sér ekki mikið upp við fréttir af gosi í gærkvöld. Hafþór vonar að nú sé skjálftunum lokið í bili. Sigríður bendir á að það heyrist í umræðunni að gosið geti varað í allt að áttatíu ár. „Ég veit ekki hvort mér líst á það.“