Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að vilji sé til að auka eftirlit með gossvæðinu. Fjöldi fólks hefur freistað þess að ganga að gosstöðvunum í dag. Rögnvaldur segir svæðið ekki lokað en að þeir sem fari að gosinu þurfi að fylgja leiðbeiningum.

„Það eru ýmsar hættur þarna á svæðinu sem þarf að varast. Það geta opnast aðrir gígar þarna á svæðinu. Þessir gígar sem eru komnir núna eru viðkvæmir og geta opnast og hraunið farið af stað. Þar sem hraunið er að fara yfir vatn geta orðið gufusprengingar og síðan geta brotist út taumar úr hrauninu,“ segir Rögnvaldur.

Aðspurður hvort það standi til að auka eftirlit við gosið segir hann: „Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með stjórn á svæðinu en það er vilji til að auka eftirlit í ljósi reynslunnar.“

Almannavarnir beindu því til íbúa austan við gosstöðvarnar að loka gluggum og skrúfa upp í ofnum í gærkvöldi vegna gasmengunar. Rögnvaldur segir að fólk ætti ekki að þurfa að grípa til slíkra ráðstafana á næstunni. 

„Nú vitum við meira en við vissum þá en miðað við þær upplýsingar sem við höfum frá vísindamönnum og þeim mælingum sem hafa verið framkvæmdar þá er það lítið af gasi þarna að það ætti ekki að hafa áhrif í byggð en það getur haft áhrif nær gosstöðvunum þannig fólk þarf að gæta varúðar þegar þau eru að fara ofan í lægðir og annað þess háttar. Sérstaklega ef það er kyrrt og stillt í veðri,“ segir hann.