Eldgosið í Geldingadölum á Reykjaneshrygg er með allra minnstu gosum sem sést hafa hér á landi, að sögn Páls Einarssonar, jarðeðlisfræðings. Vísindamenn hafa fylgst með gosinu í morgun og reyndist það vera minna en talið var í gærkvöld. Þá hefur virki hluti gossprungunnar minnkað. Hraunflæðið er á undanhaldi núna.

„Þetta er með allra minnstu gosum sem við höfum séð og höfum við þó séð lítil gos,“ sagði Páll í viðtali í aukasjónvarpsfréttatíma klukkan 12:00. Hann segir ekki ástæðu til að gera mikið úr gosinu. „Við þurfum að eiga stóru orðin til því að gos geta vissulega orðið stærri en þetta þá þurfum við að eiga stóru orðin.“

All mörg gos urðu á Reykjanesskaga frá árinu 900 til 1240. Síðan hefur ekki gosið þar og segir Páll að sú spurning hafi brunnið á fólki hvenær myndi gjósa þar næst. Merki um slíkt hafi ekki sést þar til fyrir um ári síðan þegar vart varð við kvikuinnskot. Skaginn hafi verið á iði síðan og jarðskjálftarnir skipta þúsundum.