Ute Helma Stelly, íbúi á dvalarheimilinu Hlíð, var fyrst Akureyringa til að fá bólusetningu við COVID-19. Uta var bólusett um klukkan hálf þrjú í dag og var hæstánægð með áfangann. Hún hvetur alla landsmenn til að þiggja bólusetningu þegar að því kemur. Það var Bryndís Björg Þórhallsdóttir, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður hjá stofnuninni, sem sprautaði Ute.
Hvetur alla landsmenn til að þiggja bólusetningu
„Þetta er æðislegt og hvet ég alla Íslendinga til að láta bólusetja sig því þetta er eina vopnið við höfum. Ég er mjög þakklát fyrir þetta,“ sagði Ute þegar hún fékk sprautuna á Hlíð í dag.
Ute sem er 78 ára útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1962 og starfaði meðal annars á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og á Hlíð þar sem hún býr í dag. Ute er ein 520 Norðlendinga sem fá sprautu í þessum fyrsta skammti Pfizer sem kom til landsins í gær og var dreift um land allt í dag. Hún ítrekar mikilvægi þess að fólk fái bólusetningu.
Hefur slæma reynslu af fólki sem neitar bólusetningum
„Þetta er æðisleg upplifun. Ég hef slæma reynslu fólki sem hefur ekki látið bólusetja börnin sín eða sjálfan sig og ég hvet alla landsmenn til að standa nú saman því þetta er einan vörnin sem við höfum. Það er ekkert annað í boði. Ég er mjög þakklát fyrir að þeir hafi framleitt þetta bóluefni á svona stuttum tíma með samvinnu allra manna í heiminum.“
Þannig að þér líður betur eftir þetta?
„Allt annar handleggur.“