Aukin fjarvinna í kórónuveirufaraldrinum breytti neysluhegðun fólks að mati kaupmanns, þar sem sala í netverslun tók kipp. Sumum fannst jákvætt að geta nýtt hádegið til þess að setja í þvottavél.
Fáir fundu jafn greinilega fyrir þjóðfélagsbreytingum í kórónuveirufaraldrinum og verslunarfólk. Aukin heimavinna hafði þar mikið að segja.
„Það sýndi sig strax og fólk fór að vera heima í sóttkví og vinna heima og halda sig meira inni á heimilinu, þá fór fólk að versla meira á netinu. Maður sá það bara strax,“ segir Guðrún Jóhannsdóttir, kaupmaður í Kokku við Laugaveg.
Breytt neyslumynstur gæti þó tekið lengri tíma að festa sig í sessi hér á landi.
„Íslendingurinn hefur ekki verið duglegur að versla af innlendum netverslunum, en það hefur aukist gríðarlega. Hins vegar virðist það vera þannig að Íslendingurinn vilji geta komið á staðinn og snert á vörunni og taka ákvörðun á staðnum. Þannig ég held að það hætti ekkert. Ég er svolítið spennt að sjá hvernig jólin verða í þessu samhengi.“
„Hafði í rauninni bara jákvæð áhrif“
Það virðist einnig hafa gefist ágætlega fyrir fyrirtækin sjálf þó starfsfólk hafi þurft að vinna heima.
„Í fyrstu bylgju þá sáum við í rauninni bara framlegðaraukningu ef eitthvað er, þannig það hafði í rauninni bara jákvæð áhrif,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania.
Finniði fyrir því að fólk veigri sér við að koma aftur í vinnu, kannski af ótta við smit?
„Nei, við höfum ekki orðið mikið vör við það,“ segir Ægir, og telur breytingar í þessa átt komnar til að vera og starfsfólk fái aukið svigrúm til fjarvinnu.
„Ég held það sé ekki nokkur vafi á því. Þetta er klárlega eitthvað sem öll fyrirtæki í heiminum eru að horfa til núna,“ segir Ægir.
Gott að geta sett í þvottavél í hádeginu
Starfsmenn fundu einnig fyrir breytingum á sínu lífi með fjarvinnunni.
„Það má segja að hún hafi haft frekar jákvæð áhrif. Að vinna meira í kringum fjölskylduna og svo höfum við verið meira úti á landi í kringum stórfjölskylduna. Maður var miklu meira heima og fór miklu meira á netið og verslaði á netinu og fór svona færri ferðir en kannski stærri í innkaupum,“ segir Guðmundur Steinar Zebits.
„Maðurinn minn er frá litlum bæ í Noregi þannig við skutumst þangað. Ég tók bara með mér tölvuna og það sem ég þurfti og vann úti alveg helminginn af þessum þremur vikum sem við vorum.
Mjög gott að geta líka valið þetta, farið heim og unnið einn dag og sett í þvottavélina í hádeginu og svona skilurðu,“ segir Sigrún Eir Héðinsdóttir.