Anton Sveinn McKee, eini Íslendingurinn sem hefur tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum, segir frestun leikanna hafa mikil áhrif á sálarlífið. Mikilvægt sé fyrir íþróttafólk að einblína á að komast í gegnum þetta tímabil í stað þess að ætla sér of mikið.
Anton Sveinn tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó fyrir tæpu ári síðan og var eini Íslendingurinn sem var kominn með keppnisrétt á leikunum. Anton er nú kominn heim frá Bandaríkjunum, þar sem hann býr og æfir - og segir það krefjandi fyrir íþróttafólk að halda haus í þessum aðstæðum. En hvaða áhrif hefur frestun Ólympíuleikana?
„Þetta er rosa mikil röskun og hefur rosa mikil áhrif á sálarlífið sérstaklega, það er mikið núna að vakna á morgnana og bara hvað á maður að gera, það er ekki mikill drifkraftur en maður reynir að halda afram - auðvitað var þetta rétt ákvörðun og í endann á deginum mun þetta henta mér vel og ég hef meiri tíma til að undirbúa mig og það er eitthvað sem ég hef alltaf gott af, auðvitað verður maður tilbúinn að ári, það eru bara mjög skrítnir tímar núna sem maður þarf að vinna sig í gegnum,“ segir Anton Sveinn.
Draumurinn um atvinnumennsku rættist
Anton gerðist nýverið atvinnumaður í sundi hjá kanadíska félaginu Toronto Titans, sem keppir í stórri alþjóðlegri deild, International Swimming League. Sú deild var stofnuð í fyrra en fram að því hafði ekki verið atvinnudeild í sundi í boði. Þrátt fyrir að atvinnumennskan hafi alltaf verið draumur, þá sé það enn svo að það borgi sig varla að reyna lifa á sundinu.
„Þetta er sem sagt önnur umferð af þessari atvinnumannadeild og það er fáranlegur heiður að fá að taka þátt í því og senda skilaboð til yngri krakka sem eru í þessum jaðaríþróttum, eða þessum íþróttum sem hefur ekki verið svona umhverfi áður. Að það eru möguleikar að helga sig sinni íþrótt og ná langt í henni. Á sama tíma er hvatinn ennþá sá fjárhagslega að gera þetta ekki. Sú fjárhagslega staða að vinna í eðlilegri vinnu væri alltaf betri en það sem ég er að fá, meira segja í þessu, að vera í atvinnumennsku í sundi.“
Hann er þó staðráðinn í því að nýta tímann fram að leikunum á næsta ári sem best.
„Næstu mánuðir verða áhugaverðir þar sem maður kemst ekki í laug en það eru allir í sömu aðstöðu. Það hefur verið smá skrítið að feta sig áfram en fyrir mig hefur markmiðasetningin verið sett í það að viðhalda og komast í gegnum þetta. Það er nægur tími til að undirbúa og byggja sig upp aftur og hámarka árangur,“ segir Anton Sveinn.
Hann segir ekki ráðlegt að setja of mikla pressu á sig að vera að reyna að toppa sig og bæta núna. Frekar að nýta tímann í það sem hefur þurft að sitja á hakanum, bæði að bæta liðleika, endurhæfingu og alla aðra hluti.
„Það er hægt að koma út úr þessu á góðum stað. En þau skilaboð sem ég hef fengið frá öllum þeim fagaðilum sem ég hef verið að vinna með og einblína að komast í gegnum þetta í stað þess að reyna ná einhverjum svakalegum framförum.“