Fullhressandi rokkþáttur
Allt of gaman að spila rokk. Öll óskalög hlustenda voru snilld. Plata þáttarins var Let´s dance, lögin sem voru ekki fræg á henni voru spiluð. Óskalagasímatími. Headbang-vænt.
Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.