Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Plata vikunnar er Out of Our Heads með Rolling Stones, plata sem gefin var út árið 1965.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Meðal laga á þessari plötur er Heart of Stone eftir Keith Richards og Mick Jagger. Platan kom út með mismunandi lögum í Bretlandi og Bandaríkjunum og það er breska útgáfan sem hljómar í þættinum, en hún var gefin út tveimur mánuðum á eftir bandarísku útgáfunni, nánar tiltekið 24. september 1965.
Flest lögin á plötunni voru eftir bandaríska höfunda, lög í rytmablús- og sálartónlistar stíl, en einnig rokk- og popplög. Þar á meðal eru lög eftir Chuck Berry, Sam Cooke, Marvin Gaye, Sonny Bono og Barböru Lynn Ozen. Platan inniheldur einnig tvö lög eftir Keith Richards og Mick Jagger, áðurnefnt Heart of Stone og I'm Free auk eins lags eftir alla meðlimi Stones, sem nefnist The Under Assistant West Coast Promotion Man.
Fléttuþáttur eftir Kristján Sigurjónsson um tvenn hjón í Mývatnssveit, líf þeirra og lífsviðhorf . Hafdís og Steinar eru aðflutt og búa í Reykjahlíðarþorpi, en Kristján og Sigrún eiga heima sunnan vatns á Skútustöðum. Í þættinum er fjallað um samfélagið í Mývatnssveit, brauðstrit, fuglana, náttúruna, verksmiðjuna, innfædda og aðflutta, stríð og frið.
(frá 1995)
Fléttuþáttur eftir Kristján Sigurjónsson um tvenn hjón í Mývatnssveit, líf þeirra og lífsviðhorf. Hafdís Finnbogadóttir og Steinar Sigurðsson eru aðflutt og búa í Reykjahlíðarþorpi, en Kristján E. Yngvason og Sigrún Jóhannesdóttir eiga heima sunnan vatns á Skútustöðum.
Í þættinum er fjallað um samfélagið í Mývatnssveit, brauðstrit, fuglana, náttúruna, verksmiðjuna, innfædda og aðflutta, stríð og frið.
Hljóðvinnslu annaðist Björn Sigmundsson.
(Áður á dagskrá 1995)
Veðurstofa Íslands.
Mánudaginn 5. apríl 1976 mætti 27 ára gamli bréfberinn Bo Jansson ekki í vinnu á pósthúsi í Stokkhólmi þar sem hann starfaði. Hann lét ekki heldur vita af sér eða tilkynnti sig veikan. Bosse hafði alltaf mætt samviskusamlega til vinnu svo samstarfsmenn fengu samstundis áhyggjur af að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera. Þegar lögreglan athugaði málið eftir dúk og disk og braust inn í íbúð Bosse var allt í röð og reglu en hann var hvergi sjáanlegur, hann virtist hafa gufað upp.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Hugað er að kenningum í fjórða og síðasta þætti en það eru ýmsar slíkar uppi um hvarf bréfberans Bo Jansson. Sumar eru nokkuð trúverðugar en aðrar býsna fjarstæðukenndar. Er hann lífs eða liðinn? Fer hann huldu höfði í Kaliforníu eða er hann kannski kvikmyndaleikari í Norður-Kóreu?
Rætt er við Veru Illugadóttur í þættinum.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Vikulok á kjördegi - umræður um kosningabaráttuna, síðustu kappræður, tungutak frambjóðenda og fleira. Sakfelling Donalds Trump var einnig á dagskrá og mögulegar afleiðingar hennar á feril forsetaframbjóðandans og úrslit kosninga í nóvember. Þá var rætt um mótmæli vegna framgöngu íslenskra stjórnvalda andspænis stríðinu á Gaza.
Gestir: Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, Kristín Ólafsdóttir fréttamaður og Stefán Þór Helgason stjórnmálafræðingur
Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Íslendingar kjósa nýjan forseta í dag, þann sjöunda á lýðveldistímanum. Tólf eru í framboði. Kjörstaðir voru opnaðir víða klukkan níu og þar sem lengst er opið er hægt að kjósa til klukkan tíu í kvöld.
Kjósandi sem gerir mistök í kjörklefanum, getur óskað eftir nýjum kjörseðli.
Forsætisráðherra Ísraels krefst þess áfram að Hamas-samtökin verði upprætt, eigi að nást friður á Gaza. Bandaríkjaforseti kynnti í gær tillögur Ísraelsmanna sem nýjan vegvísi að friði.
Gosið við Sundhnúksgíga er stöðugt. Búist er við að Grindvíkingar komi í bæinn í dag til að flytja búslóðir sínar burt.
Afríska þjóðarráðið missti þingmeirihluta sinn í kosningunum í Suður-Afríku í gær. Þetta er versta útkoma flokksins í þingkosningum yfir þrjátíu ár.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur tekið að sér óvenju mörg mál sem snerta bandarískt samfélag á starfstímabili sínu sem er senn á enda. Dómstóllinn virðist stefna á fleiri umdeilda dóma sem geti skaðað stofnuna til lengri tíma, segir lektor í lögfræði.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er í fullum gangi en Bandaríkjamenn kjósa sér nýjan forseta þriðjudaginn 5.nóvember. Nýr verður hann nú reyndar ekki, því þeir tveir sem til greina koma, eins og velflestir vita, heita Donald Trump og Joe Biden. Þetta er í fyrsta sinn í næstum sjötíu ár síðan sömu nöfnin eru á kjörseðlinum tvennar kosningar í röð. Trump var í vikunni sakfelldur í einu af fjórum dómsmálum sem höfðuð voru gegn honum. Ekkert þessara mála er þó talið ógna því að Trump geti orðið forseti, sama hvernig þau fara.
Í síðari hluta þáttarins ætlum við að huga að hæstarétti Bandaríkjanna, þessu valdamikla bákni sem reglulega er í fréttum. Hvað er framundan hjá dómstólnum, hvernig er hann mannaður og hvernig hann hefur í gegnum tíðina sveiflast svolítið með og stundum svolítið á móti straumnum og stjórnmálunum og ráðandi öflum hverju sinni. Við skoðum líka sögu réttararins og hvernig hann hefur breyst í tímans rás og hvernig vald þessa dómstóls hefur aukist upp á síðkastið. Þá hafa stjórnmálamenn lagt meiri og meiri áherslu á að koma sínu fólki fyrir í Hæstarétti og flestar ef ekki allar skipanir í réttinn síðustu ár hafa verið mjög umdeildar og eru orðnar eitt helsta þrætueplið í bandarískum stjórnmálum. Við ræðum við Kára Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, og Adam Liptak, sem er blaðamaður New York Times og á ekki von á því að dómsmálin dragi mikið úr fylgi Trumps fyrir forsetakosningarnar, en gætu vel gert það, sérstaklega ef hann verði sakfelldur í fleiri en einu máli.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigríður Soffía Níelsdóttir, dansari, danshöfundur og hún er einnig þekkt meðal annars fyrir flugeldasýningahönnun og blómalistaverk. Það opnaði ný sýning eftir hana, Eldblóm, í Hönnunarsafni Íslands fyrir helgi sem við fengum hana til að segja okkur frá, en auðvitað sagði hún okkur aðallega frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigríður Soffía sagði frá eftirtöldum bókum og höfundum:
Milk and Honey e. Rupi Kaur
Hold on to your Kids e. Gabor Mate
Jelli e. Bompas & Parr
At Work e. Piet Oudolf
Veröld sem var e. Stefan Zweig
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Una Sveinbjarnardóttir hefur spilað allskonar músík með allskonar tónlistarmönnum víða um heim, til að mynda með Björk Guðmundsdóttur, Rammstein, Mugison og Krystof Penderecki, svo dæmi séu tekin, er líka liðsmaður Strengjakvartettsins Sigga. Hún hefur líka verið iðin við tónsmíðar og hefur sérstakt dálæti á spuna.
Lagalisti:
Last Song before the News - Last Song before the News
Fyrramál - More Links
Umleikis - Quantum
South of the Circle - Opacity
South of the Circle - Elegia
Óútgefið - 7. ágúst
Í þáttunum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir fyrri tíðar hér á landi og settir fram eins og um nútíma fréttir sé að ræða.
Fréttalesarar eru Sigvaldi Júlíusson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Hermann Sveinbjörnsson.
Umsjónarmaður: Jón Gauti Jónsson.
Í þættinum eru rifjaðir upp helstu atburðir 9. og 10. aldar í anda hefðbundins fréttatíma.
Umsjón: Jón Gauti Jónsson. Lesarar: Sigvaldi Júlíusson, Hermann Sveinbjörnsson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
(Áður á dagskrá 2002)
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Lesarar: Broddi Broddason og Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Sonurinn heitir nýútkomin þýðing frá Uglu úgáfu. Þetta er stutt en áhrifamikil skáldævisaga eftir franska tónlistarstjórann og rithöfundinn Michel Rostain sem fjallar um eitt hræðilegasta áfall sem hugsast getur fyrir foreldri, að missa barn. Bókin hreppti hin virtu Goncourt-verðlaun árið 2011 og varð metsölubók í Frakklandi auk þess sem hún hefur verið þýdd á ýmis tungumál. Við ræðum við þýðanda verksins, Friðrik Rafnsson.
Alphonse Daudet var einn þekktasti rithöfundur Frakka á ofanverðri nítjándu öld þótt. Í landi sársaukans er afar sérstök bók, einskonar dagbókaskrif höfundar sem gefin var út að honum látnum. Þar hugleiðir Daudet dauðann og áralanga baráttu við banvænan sjúkdóm en um leið lífið sjálft. Færslurnar voru hugsanlega aðeins efniviður í meira unninn skáldskap en stendur eftir sem áður sem merkileg samtímaheimild og hugleiðingar um tilveruna.
Joanna Rubin Dranger frá Svíþjóð hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2023 fyrir myndaskáldsöguna Ihågkom oss till liv. Dranger var stödd hér á landi í byrjun maí og var haldinn viðburður í Norræna húsinu þar sem Tinna Ásgeirsdóttir tók við hana viðtal. Við heyrum glefsur úr því viðtali í þættinum.
Viðmælendur: Friðrik Rafnsson og Joanna Rubin Dranger.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þessum þáttum er fjallað um bandarískar sönggyðjur allt frá því að Bessie Smith og hinar kröftugu blússöngkonur hófu að hljóðrita með djasshljómsveitum til helstu djasskvenna okkar tíma einsog Dee Dee Bridgewater. Billie Holliday, Ella Fitzgerald og Sarah Vaughan eru drottningar djassins, en fjöldi annarra söngkvenna gerðu garðinn frægan þótt sjaldnar heyrist þær á öldum ljósvakans, nema þá gospelsöngkonan Mahalia Jackson og söngkonur sem voru á mörkum djass og popps einsog Nina Simone og Diana Washington. Samt sem áður eru þær margar sem ekki eiga skilið að falla í gleymsku og verða kynntar í þessum þáttum jafnt sem hinar frægari.
Umsjón með þáttunum hefur Vernharður Linnet.
(Áður á dagskrá 2008)
Fjallað um söngkonuna Söruh Vaughan, sem var ein af hinum þremur stóru, en hinar voru Billie Holiday og Ella Fitzgerald.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Þátturinn fjallar um breskan lækni, Andrew Wakefield, sem árið 1998 kom af stað kenningu um að tengsl væru milli bóluefnisins MMR og einhverfu í börnum. Kenningarnar reyndust ekki eiga við rök að styðjast en urðu lífseigar meðal andstæðinga bólusetninga.
Veðurstofa Íslands.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Chris Connor syngur lögin Lover Man, It Only Happens When I Dance With You, Just Squeeze Me, All I Need Is Love, The Night We Called It A Day, Moonlight In Vermont, Good For Nothin', Be My All, Try A Little Tenderness og Everything I've Got. Kvintett Herbie Hancock leikur lögin Watermelon Man, Driftin', Empty Pockets, Three Bags Full, The Maze og Alone and I. Kvartett Cliffords Jordan leikur lögin Quasimodo, I'll Be Around, The Adventurer, Blues For Muse og No More.
Gunnar Stefánsson fjallar um merkisfólk fyrri tíðar og leitar fanga í bókum og blaðagreinum.
(Áður á dagskrá 2007)
Freysteinn Gunnarsson skólastjór". Umsjónarmaður les grein eftir Andrés Kristjánsson sem birtist í Kvæðum F.G. 1987.
Umsjónarmaður: Gunnar Stefánsson.
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Í þættinum er lesið úr bréfum frá Guðmundi Inga Kristjánssyni skáldbónda á Kirkjubóli í Bjarnarfirði og rætt við Árna Björnsson cand. mag. um þjóðvarnarmanninn Sturlu Þórðarson.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Björn Þór Sigbjörnsson fylgist með talningu atkvæða í forsetakosningunum og leikur tónlist.
Útvarpsfréttir.
Tónlist af ýmsu tagi.
Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra
Upp var runninn kjördagur, þjóðin kaus sér nýja ábúendur á Bessastöðum og bar þátturinn Fram og til baka þennan morguninn keim af því öllu saman. Gestur þáttarins á milli kl. 08-09 var Tobba Marinós, fyrrum fjölmiðlakona sem söðlaði um á vormánuðum og tók við starfi upplýsingafulltrúa í ráðuneyti menningar og viðskipta. Hún sagði hlustendum frá þeim vistaskiptum og bauð hún svo upp á hressandi frásögn af fimm kosningapartíum í Fimmu dagsins.
Við héldum ótrauð áfram út frá frásögn Tobbu í að bjóða upp á kosningapartí í Fram og til baka. Hlaðborð var drekkhlaðið af alls konar kræsingum í öllum litum, fast og fljótandi. Hér má sjá hlaðborðið:
Fyrri hluti þáttar:
Stuðmenn - Út í veður og vind.
Fleetwood Mac - The Chain.
Besti flokkurinn - Besta lag í heimi
Skakkamanage og Prins Póló - Partýþoka.
Magnús Eiríksson - Komdu Í Partý.
The Smiths - Heaven knows I'm miserable now.
Seinni hluti þáttar:
Harry Nilson - Coconut.
Nýdönsk - Kirsuber.
Haukar - Fiskurinn hennar Stínu.
Ríó Tríó - Romm og Kóka Kóla.
UB40 - Red Red Wine.
Jolli & Kóla - Bíldudals grænar baunir.
Stuðmenn - Úfó.
Prins Póló - Bragðarefur.
Presidents of The United States of America - Peaches.
Holmes, Rupert - Escape (The Pina Colada Song).
Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Síðasti Móhítótinn.
R.E.M. - Orange Crush.
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Þema: Föt og flíkur
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-01
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Elly Vilhjálms - Ljúfa líf.
BEATLES - I Will.
GUÐJÓN RÚDOLF - Húfan.
Spilverk þjóðanna - Styttur bæjarins.
Clanton, Jimmy - Venus in blue jeans.
Beatles, The - Old brown shoe.
KC and The Sunshine Band - Boogie shoes.
Fóstbræður, Fóstbræður - Úlpan.
Detroit Wheels, The, Ryder, Mitch - Devil with a blue dress on & Good golly miss Molly.
Rúnar Júlíusson - Ást á skítugum skóm.
NANCY SINATRA - These Boots Are Made for Walkin'.
Day, Bobby - Rockin' Robin.
Vilhjálmur H. Guðjónsson, Ingólfur Magnússon, Árni Johnsen, Stúlknakór Reykjavíkur - Maðurinn með hattinn.
Bessi Bjarnason, Baldvin Halldórsson, Ævar R. Kvaran - Hvar er húfan mín?.
Olga Guðrún Árnadóttir - Hattur og fattur.
SSSól, Síðan skein sól - Toppurinn.
Evora, Cesaria - Saia travada = Wraparound skirt.
Nuno, Milljónamæringarnir - Farðu í fötin.
PAUL SIMON - Diamonds on the Soles of Her Shoes.
ELVIS PRESLEY - Blue Suede Shoes.
MANNAKORN - Braggablús.
Styles, Harry - Sweet creature (bonus track mp3).
Grýlurnar - Gullúrið.
The Smiths - Hand in Glove.
Erpur Eyvindsson, Ásgeir Trausti Einarsson - Hvítir skór.
SHAKIRA - Objection (Tango).
Bubbi Morthens - Jakkalakkar.
Run DMC - My Adidas.
Lana Del Rey - Blue Jeans.
STUÐMENN - Stórir Skór.
Q-Tip, MNDR, Mark Ronson and The Business Intl - Bang bang bang.
Sálin hans Jóns míns, Pétur W. Kristjánsson - Krókurinn.
MIRIAM MAKEBA - Pata Pata.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Íslendingar kjósa nýjan forseta í dag, þann sjöunda á lýðveldistímanum. Tólf eru í framboði. Kjörstaðir voru opnaðir víða klukkan níu og þar sem lengst er opið er hægt að kjósa til klukkan tíu í kvöld.
Kjósandi sem gerir mistök í kjörklefanum, getur óskað eftir nýjum kjörseðli.
Forsætisráðherra Ísraels krefst þess áfram að Hamas-samtökin verði upprætt, eigi að nást friður á Gaza. Bandaríkjaforseti kynnti í gær tillögur Ísraelsmanna sem nýjan vegvísi að friði.
Gosið við Sundhnúksgíga er stöðugt. Búist er við að Grindvíkingar komi í bæinn í dag til að flytja búslóðir sínar burt.
Afríska þjóðarráðið missti þingmeirihluta sinn í kosningunum í Suður-Afríku í gær. Þetta er versta útkoma flokksins í þingkosningum yfir þrjátíu ár.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur tekið að sér óvenju mörg mál sem snerta bandarískt samfélag á starfstímabili sínu sem er senn á enda. Dómstóllinn virðist stefna á fleiri umdeilda dóma sem geti skaðað stofnuna til lengri tíma, segir lektor í lögfræði.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Það eru forsetakosningar í dag, sjómannadagurinn á morgun en við ætlum þó ekki að einblína á þær staðreyndir heldur fyrst og fremst að hlusta á (mis)gamla og góða smelli sem auðvitað eru ekki yngri en frá 2010. Afmælisbörn dagsins eru mýmörg, þar á meðal John Bonham, Lenny Kravitz, Stevie Nicks og Alanis Morisette. Svo eru alls kyns útgáfur sem við rifjum upp svo það er af nógu að taka!
Lagalisti:
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Sirkus Geira Smart.
AMERICA - Sister Golden Hair.
HJALTALÍN - Þú Komst Við Hjartað í Mér.
PRESIDENTS OF THE UNITED STATES - Video Killed The Radio Star.
LENNY KRAVITZ - Are You Gonna Go My Way.
LED ZEPPELIN - Whole Lotta Love.
FLEETWOOD MAC - Rhiannon.
PÁLMI GUNNARSSON - Þorparinn.
THE BAND - The Weight.
DIDO - White Flag.
Lauryn Hill - Doo wop (that thing).
OUTKAST - Hey Ya!.
KYLIE MINOGUE - Can't Get You Out Of My Head.
DEPECHE MODE - Enjoy The Silence.
Björgvin Halldórsson - Himinn og jörð.
DÚKKULÍSUR - Svarthvíta hetjan mín.
ALANIS MORISSETTE - You oughta know.
TODMOBILE - Brúðkaupslagið.
NEIL DIAMOND - Sweet Caroline.
CHANGE - Yakkety yak smacketty smack.
SÍÐAN SKEIN SÓL - Vertu Þú Sjálfur.
LCD Soundsystem - All my friends (radio edit).
CARIBOU - Odessa.
FLORENCE AND THE MACHINE - Dog Days Are Over.
Guns N' Roses - Sweet child o mine.
BEASTIE BOYS - Sabotage.
BRUCE SPRINGSTEEN - Glory Days.
RAGE AGAINST THE MACHINE - Killing in the name of.
Quarashi - Stick ?em up.
GCD - Mýrdalssandur.
ROLLING STONES - Start Me Up.
KINGS OF LEON - Sex On Fire.
PÁLL ÓSKAR & UNUN - Ástin dugir.
200.000 NAGLBÍTAR - Brjótum Það Sem Brotnar.
M.I.A. - Paper Planes.
EMINEM - Lose yourself.
MARY J. BLIGE - Family affair.
Nelly - Hot in herre.
RIHANNA - Umbrella.
MGMT - Kids.
CORNERSHOP - Brimful of Asha (Norman Cook Remix).
HERBERT GUÐMUNDSSON - Can't walk away.
PÁLMI GUNNARSSON - Þorparinn.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 25. maí - 1. júní 2024.
Fréttastofa RÚV.
Útvarpsfréttir.
Rás 2 mun fylgjast með forsetakjörinu 2024 inn í nóttina. Við fáum nýjustu tölur, hlerum stemmninguna á kosninganótt og skiptum reglulega yfir í umræður úr kosningavöku í sjónvarpssal.
Umsjón: Jóhann Alfreð Kristinsson.