Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Bogi Ágústsson settist við Heimgsluggann. Við spjölluðum um vandræði Skoska þjóðarflokksins, það má segja að hann sé í vondum málum. Kosið verður til bæjar- og sveitarstjórna á Englandi í dag. Áhyggjur af djúpfölsun með gervigreind og lýðræði í Evrópusambandsríkjum voru líka á efnisskránni.
Við ræddum við Sigureyju A. Ólafsdóttur, formann stéttarfélagsins Samstöðu í Húnavatnssýslum, um helstu málefni félagsins, og boðskap hennar á baráttufundinum á Blönduósi í gær.
Svo skoðuðum við stjórnarskrána og það sem í henni segir um forsetaembættið og kíktum líka í greinargerðina sem fylgdi frumvarpinu á sínum tíma; 1944.
Tónlist:
Hljómsveit Svavars Gests, Ragnar Bjarnason - Vorkvöld í Reykjavík.
Emilíana Torrini - Today has been ok.
Plant, Robert, Krauss, Alison - Through the morning, through the night.
Sigurður Flosason, Rebekka Blöndal - Stjörnur stara (Extended version).
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum hjúkrunarfræðinga sem í dag eyða stórum hluta vinnunnar í tímafreka skriffinnsku. Henný Björk sagði okkur meira frá þessu í dag.
Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Á á laugardaginn mun Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur á Laugarvatni og forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, leiða gesti um Skálholtslandið og fræða þá um þá fugla sem þar finnast. Tómas sagði okkur frá fuglum á þessu svæði og göngunni í dag.
Jónatan Garðarsson kom aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá leik- og söngkonunni Soffíu Karlsdóttur. Hún varð þekkt í tengslum við revíu- og kabarettsýningar, svo ekki sé minnst á nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl um miðja síðustu öld, til dæmis Bílavísur og Það er draumur að vera með dáta. Soffía leit sjálf ekki á sig sem söngkonu, en eins og Jónatan sagði okkur frá í dag þá eru hún engu að síður meðal allra fyrstu dægurlagasöngkvenna Íslands.
Tónlist í þættinum í dag:
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg)
Segðu mér satt / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson)
Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson)
Bílavísur / Soffía Karlsdóttir (Holmes, texti Jón Sigurðsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Einn er í haldi lögreglu vegna rannsóknar á tugmilljóna króna þjófnað úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi.
Stúdentamótmæli í Bandaríkjunum halda áfram og voru ríflega þúsund handteknir í nótt.
Sérfræðingur í gjörgæslulækningum barna hvetur barnshafandi konur til að þiggja bólusetningu við kíghósta, sýkingin er lífshættuleg ungbörnum. 17 tilfelli hafa greinst hér á árinu.
Dráp Ísraelshers á átta ára dreng á Vesturbakkanum í nóvember er að öllum líkindum stríðsglæpur, samkvæmt sérfræðingum sem breska ríkisútvarpið ræddi við.
Sala á nýjum bílum hefur hrunið það sem af er ári. Sala á dísel- og bensínbílum eykst á meðan sala á rafmagns- og hybrid bílum dregst saman.
Búist er við að breski Íhaldsflokkurinn fái slæma útreið í sveitarstjórnarkosningum sem hófust í Englandi í morgun. Það gæti gefið tóninn fyrir þingkosningar síðar á þessu ári.
Ekkert bendir til þess að búast megi við makríl við vesturströnd íslands í sumar. Stofninn hefur minnkað mikið síðustu ár og markríll ekki sést í íslensku lögsögunni lengi.
Strandveiðitímabilið hófst í morgun. Ríflega fimmhundruð og fjörutíu útgerðir smábáta hafa tryggt sér leyfi til strandveiða - heldur fleiri en á sama tíma í fyrra.
Fulltrúar Matvælastofnunar taka sýni til kanna hvort lundar sem fundust dauðir í fjöru á Dalvíki hafi drepist úr fuglaflensu.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Er sanngjarnt að hreyfihamlaðir greiði fyrir að leggja í einkarekin bílastæði? Lögmaður Arnar Heimir Lárusson telur einkarekin bílastæðafyrirtæki brjóti á hreyfihömluðum með því að krefja þá um greiðslu fyrir að leggja. Lögin tryggi rétt þeirra til gjaldfrjálsra bílastæða. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er ein þeirra sem hefur fengið sektir fyrir að leggja í slík stæði. Ægir Finnsson framkvæmdastjóri Parka, skýrir málið frá sjónarhóli einkarekinna bílastæðafyrirtækja. Þóra Tómasdóttir talaði við þau.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti verður flutt tónlist sem tengist græna litnum. Þar má nefna þrjá söngva úr söngvaflokknum „Malarastúlkan fagra" eftir Franz Schubert, en þar kemur græni liturinn mikið við sögu. Einnig verður flutt stutt verk í F-dúr eftir Jean Sibelius, en Sibelius sá tóntegundir í litum og var þeirrar skoðunar að F-dúr væri grænn á litinn. Meðal annarra tónsmíða í þættinum eru „Erstes Grün" eftir Robert Schumann, „Grænn snjór" eftir Jónas Tómasson og „Bein´ green" eftir Joe Raposo. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Fyrir rétt rúmri viku var mælt fyrir breytingu á lögum um sviðslistir þar sem stofnað er til nýrrar Þjóðaróperu. Gestur Víðsjár í dag verður Finnur Bjarnason, óperusöngvari og verkefnisstjóri um stofnun Þjóðaróperu sem unnið hefur að málinu á síðustu mánuðum. Hann segir okkur frá þessari þróun í þættinum.
D-vítamín í Hafnarhúsi líkur á sunnudag svo það fer hver að verða síðastur að sjá hvað listamenn af yngri kynslóðinni eru að hugsa, en ákveðna þræði má greina í verkunum. Fókus á mennskuna, handverkið og söguna eru áberandi þræðir á sýningunni og Halla Einarsdóttir kafar einmitt ofan í sögu kvenna frá fyrri öldum og setur fram í áhugaverðu verki. Hún mun flytja gjörning í verkinu í kvöld og verður gestur Víðsjár í dag.
Þorleifur Sigurlásson fjallar um tónlistarstefnu sem varð til í Chile og breyddist út um alla Suður-Ameríku.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Bandaríkin búa yfir langri og djúpri sögu stúdentamótmæla, og nú stendur yfir sérstaklega áberandi mótmælaalda. Stúdentar víða um landið hafa slegið upp tjaldbúðum og krefjast þess að skólayfirvöld rjúfi tengsl við Ísrael. Emil Dagsson er doktorsnemi í hagfræði, og stundar nú rannsóknir við Brown háskóla í Providence í Rhode Island fylki. Hann fór yfir stöðuna með okkur.
Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, hefur verið að fylgjast með sjónvarpsþáttunum Skvíz, en um er að ræða nýja örseríu frá Sjónvarpi Símans.
Um þessar myndir er myndin Draumar, konur og brauð í sýningu í Bíó Paradís.
Myndin fléttar saman viðtölum við leikinn söguþráð; sagan af sýni sem þarf að sækja fyrir Hafrannsóknarstofnun og handrit sem þarf að drífa sig að klára fyrir Sólstöðuhátíð á Arnarstapa, fléttast saman við heimsóknir á kaffihús sem rekin eru af konum víðsvegar um landið.Lóa Björk fór í bíó og ræddi við aðstandendur myndarinnar.
Lagalisti:
The Beach Boys - Student Demonstration Time
Emitt Rhodes - Somebody Made For Me
slummi - trsx
Kvöldfréttir útvarps
Héraðssaksóknari hefur ákært Kolbein Sigþórsson, fyrrverandi landsliðsmann í fótbolta, fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn barnungri stúlku.
Fimm milljarða halli er á rekstri Reykjavíkurborgar og afkoman 13 milljörðum lakari en áætlað var. Þetta kemur fram í ársreikningi borgarinnar. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir helstu áskoranir í rekstrinum vegna vanfjármögnunar verkefna sem flutt voru frá ríki til sveitarfélaga.
Tólf verða í framboði til forseta Íslands 1. júní, eftir að landskjörstjórn úrskurðaði framboð Viktors Traustasonar gilt í dag.
Fólk sem keypti bíl í febrúar var krafið um greiðslu rúmlega 300 þúsund króna tryggingaskuldar. Fyrri eigandi greiddi ekki tryggingar af bílnum og því átti að ganga á nýju eigendurna sem voru grunlausir um skuldina.
Kona sem missti ástvini í snjóflóðinu á Súðavík segir marga ósátta við að þingnefnd fullyrði að ekkert saknæmt hafi átt sér stað, áður en rannsóknarnefnd er skipuð.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
2. maí 2024
Frumvarp að nýjum lögum um lagareldi styrkir sjókvíaeldi í sessi en herðir kröfur til fyrirtækja í geiranum. Eftirlitsaðilar segja nýju lögin bragarbót en náttúruverndarsinnar mótmæla frumvarpinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í lögin og ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson lektor við lagadeild HR, Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins.
Á annað þúsund manns hafa verið handtekin í mikilli mótmælaöldu sem riðið hefur yfir bandaríska háskóla síðustu tvær vikur. Öll tengjast mótmælin stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza og koma í framhaldi af svipuðum aðgerðum sem staðið hafa með hléum allt frá upphafi stríðsins 7. október. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor við Williams-háskóla í Massachusetts og sérfræðing í málefnum Miðausturlanda.
Nýlegar tölur sýna að gistinætur voru fleiri í mars en á sama tíma í fyrra og ferðamönnum fjölgaði fyrstu mánuði ársins en útlit er fyrir að þeim fækki í sumar. Pétur Óskarsson, nýkjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að jafnvel þó að fjöldinn verði svipaður þá staldri ferðamenn skemur við en áður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Pétur um ástand og horfur í greininni.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Skjaldbakan og tromman (Nígería)
Undratréð (Arabía)
Bakkabræður byggja hús (Ísland)
Leikraddir:
Elfa Lilja Gísladóttir
Valgeir Daði Einarsson
Sigurður Ingi Einarsson
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Veðurstofa Íslands.
Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands 26.
apríl s.l. þar sem fram komu sigurvegarar úr
einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og
Listaháskóla Íslands.
Á efnisskrá:
*Fagottkonsert í F-dúr, op. 75 eftir Carl Maria von Weber.
*Tzigane eftir Maurice Ravel.
*Sellókonsert í e-moll eftir Aram Katsatúríjan.
*Slátta, píanókonsert eftir Jórunni Viðar.
*Fiðlukonsert í d-moll, op.47 eftir Jean Sibelius.
Einleikarar: Helga Diljá Jörundsdóttir fiðluleikari, Hrafn Marinó Thorarensen fagottleikari, María Quing Sigríðardóttir sellóleikari, Ólína Ákadóttir píanóleikari og Tómas Vigur Magnússon fiðluleikari.
Stjórnandi: Petri Sakari.
Umsjón: Ása Briem.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum hjúkrunarfræðinga sem í dag eyða stórum hluta vinnunnar í tímafreka skriffinnsku. Henný Björk sagði okkur meira frá þessu í dag.
Alla miðvikudaga í maí verður boðið upp á menningar- og fræðslugöngur í Skálholti. Um er að ræða fræðsluerindi og göngur sem tengjast Skálholti á einhvern hátt. Á á laugardaginn mun Tómas Grétar Gunnarsson, fuglafræðingur á Laugarvatni og forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, leiða gesti um Skálholtslandið og fræða þá um þá fugla sem þar finnast. Tómas sagði okkur frá fuglum á þessu svæði og göngunni í dag.
Jónatan Garðarsson kom aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá leik- og söngkonunni Soffíu Karlsdóttur. Hún varð þekkt í tengslum við revíu- og kabarettsýningar, svo ekki sé minnst á nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl um miðja síðustu öld, til dæmis Bílavísur og Það er draumur að vera með dáta. Soffía leit sjálf ekki á sig sem söngkonu, en eins og Jónatan sagði okkur frá í dag þá eru hún engu að síður meðal allra fyrstu dægurlagasöngkvenna Íslands.
Tónlist í þættinum í dag:
Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg)
Segðu mér satt / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson)
Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson)
Bílavísur / Soffía Karlsdóttir (Holmes, texti Jón Sigurðsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Bandaríkin búa yfir langri og djúpri sögu stúdentamótmæla, og nú stendur yfir sérstaklega áberandi mótmælaalda. Stúdentar víða um landið hafa slegið upp tjaldbúðum og krefjast þess að skólayfirvöld rjúfi tengsl við Ísrael. Emil Dagsson er doktorsnemi í hagfræði, og stundar nú rannsóknir við Brown háskóla í Providence í Rhode Island fylki. Hann fór yfir stöðuna með okkur.
Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, hefur verið að fylgjast með sjónvarpsþáttunum Skvíz, en um er að ræða nýja örseríu frá Sjónvarpi Símans.
Um þessar myndir er myndin Draumar, konur og brauð í sýningu í Bíó Paradís.
Myndin fléttar saman viðtölum við leikinn söguþráð; sagan af sýni sem þarf að sækja fyrir Hafrannsóknarstofnun og handrit sem þarf að drífa sig að klára fyrir Sólstöðuhátíð á Arnarstapa, fléttast saman við heimsóknir á kaffihús sem rekin eru af konum víðsvegar um landið.Lóa Björk fór í bíó og ræddi við aðstandendur myndarinnar.
Lagalisti:
The Beach Boys - Student Demonstration Time
Emitt Rhodes - Somebody Made For Me
slummi - trsx
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Ekki er seinna vænna en að fara að huga að námi næsta vetur ef stefnan er tekin á frekara nám. Eins og fram hefur komið í fréttum þá hafa sumir skólar á háskólastigi fellt niður skólagjöld frá og með næstu önn og því ætti að vera auðveldara að finna sér nám við hæfi. Við fengum til okkar Kristínu Valsdóttur, deildarforseta listkennsludeildar Listaháskólans, til að ræða þennan breytta veruleika fyrir nemendur en Kristín ætlar líka að segja okkur af nýrri deild við skólann sem heitir Listir og velferð og býður uppá Meistaranám
Forsvarsmenn Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, eru bjartsýnir fyrir komandi sumri og segja að fram undan sé eitt stærsta sumarið á vellinum. Spár gera ráð fyrir 7,2% aukning farþega á milli ára. Þetta rímar illa við það sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa sagt en Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir útlit fyrir að spá um fjölgun ferðamanna á þessu ári muni ekki raungerast. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, kom til að ræða þessi mál og önnur sem tengjast starfssemi flugvallarins.
Úrskurðarnefnd kosningamála ógilti í gær ákvörðun Landskjörstjórnar að veita Viktori Traustasyni ekki sama frest og öðrum frambjóðendum til embættis forseta Íslands til að safna tilætluðum fjölda undirskrifta. Hvenær er undirskrift gild og hvenær ekki og hvernig eru þessar ákvarðanir teknar? Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar leit við hjá okkur í spjall um málið.
Maurar eru stórkostleg dýr, þau eru félagsverur og byggja maurabú, þar sem allar systurnar hjálpast að við rekstur og að búa til næstu kynslóð. Það sem fólki finnst kannski ekki alveg jafn stórkostlegt er að litlu lífseigu verurnar virðast hafa komið sér vel fyrir hér á landi og eru hvergi á leið héðan í bráð. Við ræddum maura og mauradaginn við Arnar Pálsson prófessor í lífupplýsingafræði og Ragnhildi Guðmundsdóttur sérfræðing hjá náttúruminjasafni íslands.
Íslandsdeild Amnesty International stendur fyrir Rússlandsherferð þar sem athygli er vakin á sífellt þverrandi tjáningarfrelsi í Rússlandi. Það hefur lengi verið takmarkað en staðan hefur hratt versnað eftir innrás Rússa í Úkraínu. Til að vekja athygli á herferðinni stendur Amnesty fyrir sýningu heimildarmyndarinnar Soviet Barbara í BíóParadís á föstudag. Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Amnesty kom ásamt Guðna Tómassyni sem er framleiðandi myndarinnar.
Lagalisti:
Kaleo - Lonely Cowboy
The Stranglers - Skin Deep
Prince - I wanna be your lover
Kiriyama Family - Disaster
Todmobile - Pöddulagið
David Bowie - Ashes to ashes
Glass Animals - Heat Waves
Stephen Sanchez - High
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Kári Halldórsson heimsótti Hjartagosa með fyrsta íslenska hljóðgerfilinn sem heitir First Love, þetta er alfarið íslensk hönnun og heitir fyrirtækið sem stendur á bak við hann Love Synthesizers. Kári sýndi hvað í Love fyrst býr og spilaði nokkur dæmi. Farið var í Gosar gegn þjóðinni og það var að sjálfsögðu þjóðin sem hafði betur.
Lagalisti þáttarins:
Emiliana Torrini - Me and Armini (Simone Lombardi Mix).
BOGOMIL FONT & MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Marsbúa chacha.
BRONSKI BEAT - Smalltown boy.
Musgraves, Kacey - Cardinal.
TOM PETTY - Free Fallin'.
Sivan, Troye - Got Me Started.
HJALTALÍN - Crack in a stone.
RICHARD ASHCROFT - A Song For The Lovers.
SLÉTTUÚLFARNIR - Akstur Á Undarlegum Vegi.
GUNS N' ROSES - Sweet Child O' Mine.
RAZORLIGHT - America.
Una Torfadóttir - Um mig og þig.
Van Halen - Why can't this be love.
Lorde - Take Me to the River.
STEVE MILLER BAND - Abracadabra.
HARRY STYLES - Satellite.
MASSIVE ATTACK - Karmacoma.
DJ SHADOW - Midnight in a Perfect World.
Swift, Taylor, Post Malone - Fortnight.
BJÖRK - Army Of Me.
Jóipé x Króli, USSEL, JóiPé, Króli - Í Fullri Hreinskilni.
DEPECHE MODE - People Are People.
Ngonda, Jalen - Illusions.
THE STONE ROSES - I Wanna Be Adored.
THE CURE - Lullaby (80).
TRÚBROT - Starlight.
JAMES TAYLOR - Fire And Rain.
HIPSUMHAPS - Fyrsta ástin.
SIGRÚN STELLA - Baby Blue.
Fleetwood Mac - Man of the world.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Einn er í haldi lögreglu vegna rannsóknar á tugmilljóna króna þjófnað úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi.
Stúdentamótmæli í Bandaríkjunum halda áfram og voru ríflega þúsund handteknir í nótt.
Sérfræðingur í gjörgæslulækningum barna hvetur barnshafandi konur til að þiggja bólusetningu við kíghósta, sýkingin er lífshættuleg ungbörnum. 17 tilfelli hafa greinst hér á árinu.
Dráp Ísraelshers á átta ára dreng á Vesturbakkanum í nóvember er að öllum líkindum stríðsglæpur, samkvæmt sérfræðingum sem breska ríkisútvarpið ræddi við.
Sala á nýjum bílum hefur hrunið það sem af er ári. Sala á dísel- og bensínbílum eykst á meðan sala á rafmagns- og hybrid bílum dregst saman.
Búist er við að breski Íhaldsflokkurinn fái slæma útreið í sveitarstjórnarkosningum sem hófust í Englandi í morgun. Það gæti gefið tóninn fyrir þingkosningar síðar á þessu ári.
Ekkert bendir til þess að búast megi við makríl við vesturströnd íslands í sumar. Stofninn hefur minnkað mikið síðustu ár og markríll ekki sést í íslensku lögsögunni lengi.
Strandveiðitímabilið hófst í morgun. Ríflega fimmhundruð og fjörutíu útgerðir smábáta hafa tryggt sér leyfi til strandveiða - heldur fleiri en á sama tíma í fyrra.
Fulltrúar Matvælastofnunar taka sýni til kanna hvort lundar sem fundust dauðir í fjöru á Dalvíki hafi drepist úr fuglaflensu.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Lovísa Rut og Siggi Gunnars voru Popplandsverðir þennan fimmtudaginn í góðu fjöri. Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar, Sundurlaus samtöl með Unu Torfa. Annars allskonar skemmtileg tónlist, nýtt og gamalt í bland.
JÚNÍUS MEYVANT - Gold laces.
THE KINKS - Sunny Afternoon.
Svavar Knútur Kristinsson - Refur.
FLEETWOOD MAC - The Chain.
Kahan, Noah, Post Malone - Dial Drunk.
SIGRID - A Driver Saved My Night.
Lipa, Dua - Illusion.
Lipa, Dua - Be the one.
Celebs - Spyrja eftir þér.
TALKING HEADS - Burning Down The House.
GLASS ANIMALS - Heat Waves.
Cage the Elephant - Neon Pill.
Una Torfadóttir - Eina sem er eftir.
Una Torfadóttir - 23.
Una Torfadóttir - Appelsínugult myrkur.
Una Torfadóttir - Ef þú kemur nær.
Una Torfadóttir - Engin spurning.
Una Torfadóttir - Fyrrverandi.
Una Torfadóttir - Heima.
Una Torfadóttir - Lágum við tvær í laut.
Una Torfadóttir - Stundum.
Una Torfadóttir - Þannig er það.
Una Torfadóttir - Er það ekki?.
Lykke Li - I Follow Rivers (The Magician Remix).
HUMAN LEAGUE - Don't You Want Me.
LAUFEY - From The Start.
Rodrigo, Olivia - Obsessed.
LILY ALLEN - The Fear.
Fontaines D.C. - Starburster.
Gossip - Heavy Cross.
Kristín Sesselja - Exit Plan.
X AMBASSADORS - Renegades.
Good Neighbours - Home.
Margeir Ingólfsson, Matthildur - Put a bullet (Radio edit).
Cyrus, Miley, Beyoncé - II MOST WANTED.
Marcagi, Michael - Scared To Start.
Magnús Þór Sigmundsson - Sleðaferð.
McEntee, Eric - I'm Not Bothered by the Rain.
ÁSGEIR TRAUSTI - Sumargestur.
BEATLES - Norwegian Wood (This Bird Has Flown).
Elín Hall - Manndráp af gáleysi.
MITSKI - Bug Like an Angel.
GARY NUMAN - Cars.
DJO - End of Beginning.
GOSI - Ekki spurning.
MOSES HIGHTOWER & PRINS PÓLÓ - Eyja.
THE BLACK KEYS - Beautiful People (Stay High)
KALEO - Lonely Cowboy.
BJÖRG PÉ - Tímabært.
MAYA HAWKE - Missing Out.
FLORENCE + THE MACHINE - Shake it Out.
TAYLOR SWIFT & POST MALONE - Fortnight.
HIPSUMHAPS - Hjarta.
UNA TORFA - Engin spurning.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Ríkisstjórnin gæti farið í átak og sett upp hvata eða ívilnanir fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að setja upp sólarsellur eins og við höfum séð víða í Evrópu. Þá hefur seinagangur í að taka upp evrópskar reglugerðir orðið til þess að Íslendingar eru á eftir þegar kemur að lagaumhverfi í orkumálum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps um bætta orkunýtni og nýja orkuöflun og var birt á þriðjudaginn. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG var í hópnum og á línunni.
Landris mælist enn við Svartsengi og þrýstingur eykst í kvikuhólfinu þar undir og því eru áfram taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist. Þar að auki er hætta talin á að hraun geti náð yfir varnargarða austan Grindavíkur ef kraftur gossins eykst á ný en hraun hefur hlaðist upp þar undanfarnar vikur. Þorvaldur Þórðarson sagði okkur frá stöðu mála á Suðurnesjum.
Hér á landi hefur kvikmyndaiðnaðurinn vaxið gríðarlega síðustu árin og kvikmynda- og sjónvarpsgerð í örum vexti sem starfsgrein. Samhliða því hefur nám í kvikmyndatækni verið eflt og byggt á góðu samstarfi við atvinnulífið og fagfólk úr kvikmyndabransanum. Stúdíó Sýrland auglýsir nú í samvinnu við Rafmennt umsóknir til kvikmyndanáms og við forvitnuðumst um stöðuna í íslenskum kvikmyndaiðnaði hjá Þór Pálssyni framkvæmdarstjóra Rafmenntar og Ingu Lind Karlsdóttur, eiganda framleiðslufyrirtækisins Skots.
Stígamót birti í dag ársskýrslu sína þar fram kemur að langflestir þolendur kynferðisofbeldis þekkja gerendur sína. Þá eru flestir þeirra sem verða fyrir ofbeldinu undir átján ára þegar það átti sér stað. Drífa Snædal, talskona Stígamóta kom til okkar.
Bandarískir stúdentar hafa verið með mótmæli í fjölmörgum háskólum í tengslum við stríði Ísraels og Hamas, en mikið hefur verið fjallað um Coumbia-háskólann í þessu samhengi. Nemendur hafa meðal annars krafist þess að háskólarnir slíti á öll tengsl við fyrirtæki sem styðja ísraelsku ríkisstjórnina og fleira. Þá hefur einnig borið á samskonar mótmælum hér á landi. Rakel Anna Boulter ræddi við okkur um mótmælin, bæði hér heima sem og í Bandaríkjunum
Það voru Valur Grettisson og Kristján Freyr sem voru umsjónarmenn þáttarins.
Kvöldfréttir útvarps
Héraðssaksóknari hefur ákært Kolbein Sigþórsson, fyrrverandi landsliðsmann í fótbolta, fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn barnungri stúlku.
Fimm milljarða halli er á rekstri Reykjavíkurborgar og afkoman 13 milljörðum lakari en áætlað var. Þetta kemur fram í ársreikningi borgarinnar. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir helstu áskoranir í rekstrinum vegna vanfjármögnunar verkefna sem flutt voru frá ríki til sveitarfélaga.
Tólf verða í framboði til forseta Íslands 1. júní, eftir að landskjörstjórn úrskurðaði framboð Viktors Traustasonar gilt í dag.
Fólk sem keypti bíl í febrúar var krafið um greiðslu rúmlega 300 þúsund króna tryggingaskuldar. Fyrri eigandi greiddi ekki tryggingar af bílnum og því átti að ganga á nýju eigendurna sem voru grunlausir um skuldina.
Kona sem missti ástvini í snjóflóðinu á Súðavík segir marga ósátta við að þingnefnd fullyrði að ekkert saknæmt hafi átt sér stað, áður en rannsóknarnefnd er skipuð.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
2. maí 2024
Frumvarp að nýjum lögum um lagareldi styrkir sjókvíaeldi í sessi en herðir kröfur til fyrirtækja í geiranum. Eftirlitsaðilar segja nýju lögin bragarbót en náttúruverndarsinnar mótmæla frumvarpinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í lögin og ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson lektor við lagadeild HR, Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins.
Á annað þúsund manns hafa verið handtekin í mikilli mótmælaöldu sem riðið hefur yfir bandaríska háskóla síðustu tvær vikur. Öll tengjast mótmælin stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza og koma í framhaldi af svipuðum aðgerðum sem staðið hafa með hléum allt frá upphafi stríðsins 7. október. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor við Williams-háskóla í Massachusetts og sérfræðing í málefnum Miðausturlanda.
Nýlegar tölur sýna að gistinætur voru fleiri í mars en á sama tíma í fyrra og ferðamönnum fjölgaði fyrstu mánuði ársins en útlit er fyrir að þeim fækki í sumar. Pétur Óskarsson, nýkjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að jafnvel þó að fjöldinn verði svipaður þá staldri ferðamenn skemur við en áður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Pétur um ástand og horfur í greininni.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Fréttastofa RÚV.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Eitt nýtt, eitt gamalt var þema kvöldsins framan af þætti sem litað af fortíðarþrá í gömlu góðu vídeóleigudagana þar sem leigð var ein gömul og ein ný spóla, en í kvöld var um lög að ræða. Svo kom slummi í spjall og við spiluðum hans nýjustu plötu Idiot Flower sem kom út á dögunum. Svo að lokum fengum við póstkort frá Kaupmannahöfn, það var frá Ásu (Asalaus) þar sem hún kynnti fyrir okkur verk sitt Hjáleið/Déviation.
Draumur okkar beggja - Stuðmenn
Bad habits - The Offspring
Hot tears - Tófa
Romantika - Brutalismus 3000
Tína blóm - Sucks to be your Nigel
Der Rauber und der Prinz - DAF
Framleitt, auglýst, selt - Torfi
Devil in me (ft. Steed Lord) - Legend
Lib·rā (Tonik Ensemble Remix) - Miniml Distortion, Tonik Ensemble
Inner City Life - GOLDIE
haldaafram (atliFinns_junglemix) - ex.girls
Mr. Grieves - Pixies
Krishna on the Cross - Stefán Elí
Cheree - Suicide
It's got a little ring to it - Msea
Diesel Power - Prodigy
I don´t know what I saw in you - Malen Áskelsdóttir
Hey Cowboy - Lee Hazlewood
A Kinder Way - Andervel
ha ha ha - slummi
TTT - slummi
kerfill - slummi
umbl - slummi
trsx - slummi
idiot flower - slummi
slepja - slummi
Hjáleið / Déviation - Asalaus