Landakort

Er stafræna byltingin að stela minningunum okkar?

"Við erum upplifa þá tíma sem er hvað mest myndið í heiminum. Það eru allir með flotta myndavél í símanum sínum og það eru allir mynda allt sem gerist. En við höfum áhyggjur af því þetta verði tími sem verður mest myndaður en minnst verður til af myndum af," segir Þórhallur Jónsson eigandi ljósmyndaþjónustunnar Pedrómynda á Akureyri.

Líklega höfum við aldrei verið jafn dugleg við skrásetja daglegt líf okkar. Við tökum ógrinni af ljósmyndum og erum í stöðugum samskiptum við vini okkar í gegnum samfélagsmiðla og samskiptaforrit. En hvað af þessu varðveitist eftir okkar dag? Ömmur okkar og afar geta iljað sér við lesa gömul ástarbréf en rómantísk skilaboð á snapchat eða "læk" á instagram er erfiðara varðveita.

Landinn veltir því fyrir sér í kvöld hvort stafræna byltingin mögulega stela frá okkur minningunum.

Frumsýnt

10. feb. 2021

Aðgengilegt til

18. júlí 2024
Landakort

Landakort

Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.

,