Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Nýjar íslenskar óperur og útgáfutónleikar eru kjarninn menningarfréttum vikunnar. Við ræddum líka við ungmenni um neysla íslenskra á orkudrykkjum hér á landi sem er með því mesta sem þekkist í Evrópu og þá þau eru íslensk ungmenni einnig farin að nota nikótínpúða í auknum mæli.
Listamaðurinn Neil Harbisson sér ekki liti eins og flest fólk - hann heyrir þá. Fyrir tuttugu árum lét Harbisson, sem er litblindur, græða loftnet í höfuðkúpuna á sér sem gerir honum kleift að skynja liti með hljóðbylgjum. Sólveig Klara Ragnarsdóttir hitti Harbisson.
Garðyrkjuþáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur. Í þáttunum fjallar hún um sáningu matjurta, klippingu á berjarunnum og ýmislegt annað sem lýtur að garðyrkju og heilsar upp á fólk sem er að rækta hitt og þetta. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum þætti fjallar Gurrý um sáningu matjurta og klippingu á berjarunnum.
Leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Randver Þorláksson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sýna áhorfendum samtíðaviðburði frá nýju sjónarhorni. Stjón upptöku: Björn Emilsson.
Danskir þættir um kökubakstur og eftirréttagerð. Mette Blomsterberg útbýr kræsingar.
Sænsk þáttaröð um mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar. Blaðakonan og aðgerðasinninn Anni Emilia Alentola hittir fólk af öllum stærðum og gerðum og ræðir um líkamann og hvernig maður getur losað sig undan samfélagslegum normum.
Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga.
Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
Hugrökk stelpa bjargar apakónginum, guði sem hafði lengi verið fastur í steini, og leggst í för til að finna sjö heilög handrit og bjarga heiminum frá illu.
Ólafía og Hekla eru uppátækjasamar og forvitnar vinkonur sem stelast til að framkvæma hinar ótrúlegustu vísindalegu tilraunir í skólanum sínum, með misgóðum árangri.
Hekla: Auður Óttarsdóttir
Ólafía: Guðbjörg Marý Eyjólfsdóttir
Ólafía og Hekla laumast enn og aftur í tilraunastofuna. Þar fræðast þær um hvernig hljóð ferðast í vatni.
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Kappræður með frambjóðendum til embættis forseta Íslands. Sjálfvirkur texti er í boði á síðu 888 og í beinu streymi í spilara RÚV. Kappræðurnar eru einnig sýndar á sama tíma á RÚV 2 með táknmálstúlkun.
Flokkur breskra sakamálamynda um Morse rannsóknarlögreglumann í Oxford á yngri árum. Hann ræður strembnar morðgátur, kynnist mönnum sem hann á eftir að starfa með næstu áratugina og þróar með sér eftirtektarverð skapgerðareinkenni sem hann á eftir að fínpússa á löngum og gifturíkum ferli. Í helstu hluverkum eru Shaun Evans og Roger Allam. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Spennumynd frá 2015 með Tom Hardy, Gary Oldman og Noomi Rapace í aðalhlutverkum. Árið er 1952 og rússneskur lögreglumaður eltist við raðmorðingja sem myrðir börn. Rannsóknin gengur treglega því í Sovétríkjum Stalíns er ekkert til sem heitir morð - slíkt gerist bara í löndum sem auðvaldið hefur spillt. Leikstjóri: Daniel Espinosa. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Kappræður með frambjóðendum til embættis forseta Íslands.