Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Talsett fjölskyldumynd frá 2009. Artúr fær neyðartilkynningu um að Selenia prinsessa sé í mikilli hættu. Hann leggur strax af stað til að hjálpa henni en þegar hann mætir í land Mínímóanna kemur í ljós að hann hefur verið blekktur og það var ekki Selenia sem sendi honum neyðarboðið. Aðalhlutverk: Freddie Highmore.
Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Við förum í heimsókn að Háafelli þar sem um 220 geitur búa. Hittum hænurnar á leikskólanum Laufásborg og dýrin sem búa á dvalarheimilinu Bæjarási. Skoðum nýjustu tísku í hundafatnaði og forvitnumst um gamla Sædýrasafnið í Hafnarfirði.
Dönsk heimildamynd þar sem listakonan Nadia Plesner fjallar um sjálfsmyndir, bæði fyrr og nú, og reynir að komast að því hvers vegna fólk hefur í gegnum tíðina verið jafn upptekið af því að mynda sjálft sig og raun ber vitni.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Upptaka frá sérstakri skemmti- og hvatningardagskrá heildarsamtaka launafólks í tilefni baráttudags verkalýðsins árið 2021. Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá launafólki, einkenna þennan sögulega viðburð. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson. Handrit og leikstjórn: Kolbrún Halldórsdóttir.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi vill alls ekki að dóttir sín spili brennibolta, en hún hlustar ekki á hann. Eddi verður að vernda hana eins vel og hann getur!
Heimildarmynd frá 2023. Regluleg kennaraverkföll á Íslandi í nærri fjóra áratugi eru mörgum kynslóðum í fersku minni. Daglegar venjur fjórðungs þjóðarinnar fóru úr skorðum og líf nemenda tók nýja stefnu á sama tíma og þjóðfélagsátök einkenndust af baráttu við efnahagssveiflur. Fjallað er um kennaraverkfallið 1995 og saga verkfalla kennara frá 1977 og áhrif þjóðarsáttar á kjaramálaumræðu rakin. Leikstjóri: Einar Þór Gunnlaugsson. Handrit: Sigurður Pétursson og Einar Þór Gunnlaugsson.
Bresk heimildarmynd frá 2020 um gerð plötunnar Songs from the Big Chair með Tears For Fears sem tekin var upp árið 1984. Platan átti stóran þátt í að móta popptónlist og hljóðheim níunda áratugarins með lögum á borð við Mothers Talk, Shout og Everybody Wants to Rule the World.
Íslensk mynd frá 2007 sem gerist á áttunda áratugnum og segir frá þremur ungum byltingarsinnum sem fara norður í land til að starfa á vistheimili fyrir vandræðaunglinga. Þeir hafa háleit markmið og ætla að breyta heiminum til hins betra og byrja á Veðramótum. Þetta reynist þeim hins vegar vera erfitt verkefni því krakkarnir sem eru vistaðir á heimilinu eru erfiðir viðureignar. Flest eiga þau það sameiginlegt að hafa sætt illri meðferð heima sjá sér eða annars staðar. Myndin fjallar á óvæginn hátt um sifjaspell og ofbeldi sem börn og unglingar hafa mátt sæta. Aðalhlutverk: Hilmir Snær Guðnason, Hera Hilmarsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir. Leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.