Þriðja sería af Elías, sem er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Matthildur er 12 ára stelpa sem býr yfir sérstöku leyndarmáli. Á hverjum degi þegar hún vaknar býr hún yfir nýjum ofurkrafti sem hún þarf að læra að stjórna. Aðeins besti vinur hennar veit af þessu og saman lenda þau í alls kyns ævintýrum.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Valgeir Örn Ragnarsson hefur umsjón með þættinum. Það steðjar öryggisógn að Íslandi og öðrum Evrópuþjóðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu, stríðsins á Gaza og loftslagsbreytinga. Hverjar eru helstu ógnirnar? Hvað er verið að gera til að verjast þeim? Hvað þarf að gera betur? Gestir þáttarins eru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálastofnunnar, Hallgrímur Indriðason fréttamaður og Logi Einarsson alþingismaður.
Í seinni hluta þáttarins kemur Guðrún Karls Helgudóttir nýkjörinn biskup Þjóðkirkjunnar og ræðir hvernig hún mun beita sér í embætti.
Ástin er mikil ráðgáta og í þessum dönsku þáttum er gerð tilraun til að finna lykilinn að henni. Getur verið að hann sé að finna í magni persónulegra gagna? Til að sannreyna vísindin á bak við Big Data eru átta einhleypir einstaklingar paraðir saman út frá persónuupplýsingum. Mun ástin kvikna þegar fólkið fer að búa saman og kynnast nánar?
Íslensk heimildarþáttaröð í sex hlutum þar sem skyggnst er inn í heim tvíbura og sagðar persónulegar sögur. Í þáttunum er fylgst með því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til og þeim sterku tengslum sem virðast fylgja flestum tvíburum út lífið. Hvaða helstu áskoranir bíða tvíbura, búa þeir yfir meiri samkennd en aðrir, hversu samtaka í lífinu eru þeir og hugsa þeir jafnvel eins? Umsjón og framleiðsla: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.
Alexandra Ósk Jónsdóttir og Arnar Hlynur Elliot Magnússon eru að fara takast á við stærsta og mikilvægasta hlutverk sitt á lífsleiðinni, að verða foreldrar. Það er afrek að koma barni í heiminn, hvað þá tveimur í einu. Í þessum þætti er fylgst með tvíburafæðingu og álaginu sem fylgir því að fá lottóvinninginn tveir fyrir einn.
Íslensk heimildarmynd um vistrækt, sem er heildrænt hönnunarkerfi sem horfir til náttúrunnar með það að markmiði að skapa sjálfbært samfélag. Við fylgjumst með ferðalagi til sex landa og sjáum að hægt er að hanna kerfi sem felur í sér vistrækt í næstum hvaða loftslagi sem er. Dagskrárgerð: Þórður Jónsson og Heather Millard. Framleiðandi: Compass ehf.
Beinar útsendingar frá bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Bein útsending frá leik Þróttar og Fylkis í 16 liða úrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2020 og hitti landann fyrir uppi á fjöllum, úti í garði, á tjaldsvæðinu, vinnustaðnum, hjólastígnum og víðar.
Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir og fleiri.
Í Leiðangrinum fær Sigyn fluggáfaða krakka til að hjálpa sér að leysa ráðgátur um allt land.
Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Við erum stödd í Vestmannaeyjum og þeir Patrekur Þór Magnússon og Andri Erlingsson ætla að rannsaka hvort það sé satt að sjóræningjar hafi komið til Vestmannaeyja í gamla daga.
Ótrúlega spennandi leiðangur sem endar á Ræningjatanga.
Þrjár leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Fimmhundruðkallinn, Dularfulla hálsmenið, Bókrollan og stuldurinn á hálsfestinni, voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Kjartan hrasar um furðulegan hlut á hlaupum sínum um borgina og reynist furðuhluturinn vera æviforn bókrolla frá Sahara eyðimörkinni.
Magnús besti vinur Kjartans er hans eina von til að komast að leyndardómum bókrollunnar en Magnús er ekki allur þar sem hann er séður. Höfundur: Kolbeinn Kjói Kjartansson
Anne Dorothea á mjög sérstakan besta vin, björgunarhundinn Bessa!
Í þessum þáttum kynnumst við afkvæmum dýra frá mismunandi stöðum um allan heim! Við fræðumst um hvernig þau þroskast, hvernig þau sækja sér æti og svo margt margt fleira!
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Heimildarmynd um rithöfundinn Pétur Gunnarsson. Arthúr Björgvin Bollason tekur Pétur tali og vinir hans og samferðafólk segja frá kynnum sínum af honum. Rætt er um áhrifavalda Péturs auk þess sem farið er yfir feril hans frá fyrstu verkum til þess sem hann er að fást við í dag. Kvikmyndastjórn: Jón Egill Bergþórsson. Framleiðsla: Eggert Gunnarsson.
Sannsöguleg kvikmynd frá 2015 með Bryan Cranston og Helen Mirren í aðalhlutverkum. Árið 1947 var Dalton Trumbo einn eftirsóknarverðasti handritshöfundur Hollywood allt þar til hann og fleira listafólk var sett á bannlista vegna stjórnmálaskoðana sinna. Leikstjóri: Jay Roach.
Bandarísk kvikmynd með Owen Wilson og Vince Vaughn í aðalhlutverkum. Mikil tækiþróun á vinnustað sölumannanna Billys og Nicks gerir þá óþarfa og þeir eru látnir fara. Ólmir í að sanna mikilvægi sitt komast þeir í eftirsóknarvert starfsnám hjá Google og keppa þar við unga tæknisnillinga um fastráðningu. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Beinar útsendingar frá bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Bein útsending frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks í 16 liða úrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Samantekt á leikjum í bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Samantekt á leikjum í 16 liða úrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta.