Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Sjósund er fyrir löngu orðið heilsárssport á Íslandi og nýverið reis ný aðstaða í Gufunesi sem nefnist Katla sem arkitektúrnemar við Listaháskólann hönnuðu og byggðu. Um fimmtán þúsund eldri borgarar lifa undir fátæktarmörkum. Þetta kom fram á landsfundi Landssambands eldri borgara sem haldinn var í gær. Þorbjörn Guðmundsson, formaður kjararáðs Landssambands eldri borgara og Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis ræða þetta.
Spurningakeppni framhaldsskólanna þarf vart að kynna og einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar og dómarar eru þau Bryndís Björgvinsdóttir, Vilhelm Anton Jónsson og Sævar Helgi Bragason. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í Toppstöðinni er fylgst með ólíkum hópum frumkvöðla í spennandi vegferð hugmyndar, af þróunarstigi til fullbúinnar vöru eða þjónustu. Meðal annars verður fylgst með nýjungum á sviði húsbygginga, símatækni, orku, eldsneytis, heilsuvara og afþreyingar fyrir börn svo fátt eitt sé nefnt.
Danskir þættir um móðurhlutverkið. Í þáttunum er fjallað um þær miklu breytingar sem fylgja því að verða móðir, kröfurnar sem mæður gera til sjálfra sín og hvernig gengur að samræma móðurhlutverk, fjölskyldulíf og vinnu.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Í Landanum í kvöld fylgjum við stórum hópi Íslendinga á kóramóti í Þrándheimi, hittum hjón sem sameinast i ástríðu á smíðum og gera upp hús á Ísafirði, tökum stöðuna á tjaldsvæðinu á Hömrum og lokum Færeyjum vegna viðhaldsvinnu.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Önnur þáttaröð þessara skosku spennuþátta. Lögfræðingurinn Max er laus úr fangelsi og fallinn í ónáð. Hann grunar alla um græsku og ekkert er eins og það sýnist. Aðalhlutverk: Mark Bonnar, Emun Elliot og Henry Pettigrew. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Eamonn Walker og David Eignberg. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2019. Lögreglufulltrúinn Humberto og samstarfskona hans, Alice, rannsaka dularfull andlát tveggja ungra kvenna. Aðalhlutverk: Adriano Luz, Jani Zhao og Afonso Pimentel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.