Von á nýju frumvarpi um RÚV

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra tilkynnti á Alþingi nú fyrir stundu að von væri á nýju frumvarpi um ríkisútvarpið í næstu viku. Það muni meðal annars hafa að markmiði að efla sjálfstæði ríkisútvarpsins.

Siv Friðleifsdóttir spurði ráðherra um þetta mál. Siv benti á að ríkisútvarpið stæði mjög traustum fótum og varaði við því að auka pólitísk afskipti af ríkisútvarpinu, þá yrði farið í gamla pólitíska farið. Menntamálaráðherra sagði að í frumvarpinu yrði lagt til að valnefnd myndi velja þá sem taki sæti í stjórn rúv en þeir verði ekki kosnir af Alþingi. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku