Villa hækkaði fasteignaskatt

Ísafjarðarbær braut lög þegar fasteignaskattur var hækkaður í 0,65%. Lögbundið hámark er 0.625%. Bærinn þarf að leggja fasteignagjöld á aftur til að leiðrétta þetta. Samkvæmt upplýsingum frá Ísafjarðarbæ er innsláttarvillu um að kenna.
Ætlunin var að hækka fasteignaskatt í lögbundið hámark, en lækka vatns- og holræsagjöld á móti, svo heildarútkoman yrði sú sama fyrir húseigendur. Fasteignaskattsprósentan hafi hins vegar verið vitlaust slegin inn og farið þannig í gegnum bæjarstjórn. Fasteignagjöldin eru saman sett úr fasteignaskatti, holræsagjaldi og vatnsgjaldi. Fasteignagjöldin, samtalan, er sú sama þrátt fyrir mistökin, 1,08% af fasteignamati, þannig að íbúar voru ekki rukkaðir um hærri upphæð en ella.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







