Vilja opna í Skálafelli

Skíðadeild KR hefur beint óskum til stjórnenda og eigenda Skíðasvæða höfuðborgarinnar um að aðstaðan í Skálafelli verði opin um helgar í vetur.

Aðstaðan í Bláfjöllum dugi ekki öllum þeim íbúum höfuðborgarsvæðisins sem sæki til fjalla þegar aðstæður leyfa. Þá segir í bréfi skíðadeildarinnar til Síðasvæðisins að Bláfjöll og Skálafell séu ekki á sama veðursvæði, aðstður séu þar oft ólíkar eftir veðri. Í Skálafelli sé lengsta skíðalyfta landsins og fleiri lyftur í ágætu lagi. Mælist skíðadeildin til þess að efnt verði til samstarfs sérstakrar rekstrarnefndar skíðadeildarinnar og stjórnenda skíðasvæðanna um rekstur í Skálafelli í vetur. Anna Laufey Sigurðardóttir, formaður Skíðadeildar KR og Diljá Ámundadóttir, í stjórn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins ræddu um Skálafell í Síðdegisútvarpinu á rás 2. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku