Vel miðar í meirihlutaviðræðum

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi.

Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Listi Kópavogsbúa funduðu í dag um myndun nýs meirihluta í Kópavogi. Ómar Stefánsson segist vera bjartsýnn á að flokkarnir þrír nái saman.

Vel hafi miðað áfram í viðræðum á föstudag. Þá hafi menn verið í símasambandi í gær. Ómar segir að nú ræði menn við baklandið enda sé mikilvægt að þar ríki traust. Fulltrúarnir í meirihlutaviðræðunum muni heyrast í síma í kvöld og svo sé stefnt að fundi á morgun. Ómar vill ekki gefa upp hvaða mál Framsóknarflokkurinn setji á oddinn í viðræðunum en bendir á stefnuskrá flokksins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku