Úttektin kostaði 70 milljónir

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.
Úttektin á lífeyrissjóðunum í aðdraganda hrunsins kostaði um 70 milljónir króna. Þriggja manna nefnd skilaði af sér 800 blaðsíðna skýrslu í gær eftir rúmlega árs vinnu. Þessu fé er vel varið, segir Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður Landssamtaka lífeyrissjóða, sem stóðu fyrir skýrslugerðinni.
„Ef við tökum kostnaðinn allt frá byrjun og miðum við haustið 2010 þegar verkið fór í gang og miðum við að því ljúki núna nánast um helgina þá áætlum við og höfum tölur um það að þetta muni rétt losa 70 milljónir króna,“ segir Arnar.
„Sú tala er auðvitað umtalsvert hærri heldur en við reiknuðum með í byrjun. Við verðum að hafa það í huga að verkið var umfangsmeira, það var ákveðið að taka árið 2006 með og gera skýrsluna enn viðtækari og betur úr garði gerða þannig að almenningur ætti kost á að kynna sér innihald hennar enn betur. Þannig að ég held að þessum peningum hafi verið vel varið,“ segir Arnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Óeðlileg hlutabréfakaup í Straumi
Undrast hlut Exista í tapi sjóðanna





