Útreikningar forsætisráðherra rangir

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir að fullyrðing forsætisráðherra um hlut ríkisins í hækkun á bensínverði sé ekki rétt.
Jóhanna Sigurðardóttir var gestur Morgunútvarpsins í morgun þar sagði hún að þess misskilningsgætti að ríkið væri að hirða til sín hærri skatta. „Það er nú ekki svo því ef við horfum á þær hækkanir þá hefur bensín hækkað um 18 til 19 krónur frá áramótum en af því eru ekki nema þrjár krónur sem koma í hlut ríkisins. Þetta er fyrst og fremst hækkun á heimsmarkaðsverði.“ Sagði Jóhanna.
Útreikningar FÍB sýna að þetta er einfaldlega ekki rétt hjá forsætisráðherra. Útsöluverðið hefur hækkað um 18 krónur. Þar af hækkaði innkaupsverðið um sjö krónur. Vörugjaldið hefur hækkað um 60 aura, Bensíngjaldið um tæpa krónu, kolefnisgjaldið um 1,20 krónur og vaskurinn um 3,66. Skatturinn sem rennur í ríkissjóð hefur því ekki hækkað um þrjár krónur heldur 6 krónur og 42 aura.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að þetta sé ekki réttur útreikningur hjá forsætisráðherra. „Það vantar nákvæmlega helminginn upp á. Þetta eru 6,42 krónur sem ríkið er að taka í dag umfram það sem það var að taka í lok desember,“ segir Runólfur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







