Umdeildar framkvæmdir á Akureyri

Fyrsta skóflustungan að umdeildum framkvæmdum við Dalsbraut á Akureyri var tekin í morgun. Formaður framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar er sannfærður um að bæjarbúar verði á endanum sáttir við brautina.
Lagning Dalsbrautar var eitt helsta deilumálið í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Henni er ætlað að tengja saman Lundahverfi og Naustahverfi. Lagning hennar var kærð til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála, sem felldi úr gildi ákvörðun skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir hluta brautarinnar, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut.
Framkvæmdir við syðsta hluta brautarinnar eru hafnar og þeir sem eru fylgjandi framkvæmdunum fylgdust með þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Oddur Helgi Halldórsson, oddviti meirihlutans í bæjarstjórn er þess fullviss að allir bæjarbúar sætti sig við Dalsbrautina, þegar hún verður fullbúin. Hann er þess fullviss að þegar menn sjá hve mikil samgöngubót þetta verður fyrir alla Akureyringa þá hljóðni óánægjuraddir.
„Við reynum að gera eins mikið og við getum í sumar. Spurning hvenær við fáum framkvæmdaleyfi með ytri partinn, frá Skógarlundi út í Þingvallarstræti. Ég geri ráð fyrir að þessi partur út að Skógarlundi verði til í ár, en hitt á næsta ári,“ segir Oddur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













