Tveimur sagt upp vegna sameiningar

Sex hætta störfum við sameiningu Íslandsbanka og Byrs á Akureyri, þar af var tveimur sagt upp störfum. Í fjórum tilfellum er um að ræða tímabundnar ráðningar sem ekki verða endurnýjaðar eða fólk sem hætta mun sökum aldurs.

Sjö var sagt upp á Akureyri við sameiningu höfuðstöðva bankanna í nóvember síðastliðnum. Að sögn Guðnýjar Helgu Herbertsdóttur, upplýsingafulltúra Íslandsbanka, er hagræðingaraðgerðum vegna sameiningar Íslandsbanka og Byrs þar með lokið.

Íslandsbanki flytur starfsemi sína á Akureyri yfir í húsnæði Byrs við Skipagötu 14 á mánudaginn. Á næstu vikum verða gerðar endurbætur á núverandi húsnæði Íslandsbanka og starfsemin flutt þangað á ný í mars.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku