Turtildúfur !?
Fyrst birt: 06.02.2012 19:37, Síðast uppfært: 06.02.2012 19:37

Mörgum blöskrar framganga Angelu Merkel, sem tekin er að beita sér í kosningabaráttu Sarkozýs.
Pólitískt samstarf Angelu Merkel Þýskalandskanslara og Sarkozys Frakklandsforseta í Evrópumálunum hefur orðið æ nánara síðustu árin. Nú hefur Merkel ákveðið að leggja Sarkozy lið í baráttu hans fyrir endurkjöri, en forsetakosningar verða haldnar í Frakklandi þann 6. maí. Stuðningur Merkel við kosningabaráttu Sarkozys hefur mælst misjafnlega fyrir, bæði í Frakklandi og í heimalandi kanslarans. Arthúr Björgvin Bollason fjallar um málið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







