Töpuðu 170 milljörðum á Existu

Skýrslan er í fjórum bindum, heilar 800 blaðsíður. Myn: Þórgunnur Oddsdóttir.
Lífeyrissjóðirnir töpuðu rúmum 170 milljörðum á viðskiptum við Existu og tengda aðila. Tap lífeysissjóðanna vegna Existu er 44 prósent af öllu tapi sjóðanna vegna hluta- og skuldabréfa.
Þetta kemur fram í skýrslu um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun sem kynnt var í dag. Þar segir að lífeyrissjóðirnir hafi fjárfest of mikið í tengdum fyrirtækjum. Lífeyrissjóðirnir falla ekki undir ákvæði laga um fjármálafyrirtæki en það er þó mat nefndarmanna að sem fagfjárfestar hafi þeir mátt horfa til varúðarsjónarmiða laganna við fjárfestingar sínar. Lífeyrissjóðirnir töpuðu rúmum 170 milljörðum vegna bréfa í Existu og tengdum félögum. Þá nam tap sjóðanna vegna Baugs og tengdra aðila rúmum 77 milljörðum.
Hægt er að nálgast skýrslua á vef Landssamtaka lífeyrissjóða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Tapið meira en útgjöld ríkisins
Tap lífeyrissjóðanna 479 milljarðar





