Þjóðverjar við loftrýmiseftirlit

Þriggja vikna loftrýmiseftirlit Þjóðverja hér við land hefst á mánudag. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að búið sé að semja um það næstu tvö árin. Hins vegar sé verið að kanna hvort Norðurlöndin eigi að taka við því.
Bandaríkjamenn voru síðast hér við loftrýmisgæslu í ágúst. Nú er hins vegar komið að Þjóðverjum. Um 150 liðsmenn þýska flughersins taka þátt í verkefninu og koma með fjórar 4F orrustuþotur. Þá voru um fjörutíu gámar og annað eins af farartækjum flutt hingað til lands í vikunni. Aðflugsæfingar verða á Akureyri og Egilsstöðum í næstu viku.
Utanríkisráðherra segir eftirlitið vera með hefðbundnu sniði. Þjóðverjar verða hér í þrjár vikur, Bandaríkjamenn koma í sumar og síðar á árinu koma Portúgalir. Búið sé að manna þetta fyrir næstu tvö ár. Þetta verði með svipuðum hætti og í Eystrasaltslöndunum. Segja megi að þetta sé partur af þeim viðbúnaði sem Atlantshafsbandalagið hafi í Evrópu
Össur segir að ánægja sé með hvernig Íslendingar hafa staðið að þessu. Hins vegar sé nú til umræðu hugmynd sem Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, setti fram fyrir þremur árum, um að Norðurlöndin tækju að sér loftrýmisgæslu á Íslandi. Framvinda þess fari eftir afstöðu Svía og Finna, sem eru ekki í NATO.
Össur segist hafa verið þessu hlynntur. Þetta hafi verið rætt mörgum sinnum á fundum utanríkisráðherra Norðurlandann og hann finni að ákveðinn spenningur sé fyrir þessu í Finnlandi og Svíþjóð. Eigi að síður hafi aldrei verið tekin ákvörðun um þetta vegna þess að þetta sé töluvert skref fyrir þær þjóðir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













