Sarpurinn

Hamingjudalur
Happy Valley II05/04/2016 - 22:20

Veðurfréttir
05/04/2016 - 22:15
Tíufréttir
05/04/2016 - 22:00
Þó að gleðin hafi verið mikil hjá albönsku fjölskyldunum sem komu hingað til lands í dag eftir að hafa fengið ríkisborgararétt fyrir jól, var greinilegt að undanfarnar vikur hafa tekið á. Pellumb Ndoka, annar fjölskyldufaðirinn, sem á hjartveikan son, var ekki hrifinn af meðferðinni sem fjölskylda hans fékk. „Það var farið illa með okkur af hluta stjórnvalda, ekki öllum. En nú er búið að laga það, og við þökkum fyrir það.“
Um heilsufar sonar síns segir Pellumb að hann verði skoðaður á næstu dögum en það sé alveg ljóst að hann þurfi að fara í hjartaaðgerð.
Hermann Ragnarsson, helsti talsmaður þess að fá fjölskyldurnar aftur, segir mál þeirra kalla á endurskoðun á útlendingakerfinu, þó að þetta mál hafi endað vel. „Þessar reglur og þetta sem fólk er að vinna eftir þarf að laga til þannig að fólk geti haft einhverjar smugur í svona tilfellum. Vonandi hefur það einhverjar breytingar í för með sér um hvernig er tekið á svona málum, ég vona það allavega.“





