Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, Runólfur Ólafsson, segir að einsleitni á eldsneytismarkaði hér á landi kosti neytendur mörg hundruð milljónir á hverju ári. Olíufélögin sjái ekki hag í því að keppa um viðskiptavini.

Olíufélögin eru iðin við að bjóða afslætti, oft í tengslum við viðburði nú síðast heimsmeistaramótið í handbolta. Þá fær fólk tölvupóst eða SMS með tilkynningum um afslátt frá einu félagi og oftar en ekki fylgja svo önnur í kjölfarið með sama, eða kannski einni krónu meiri, afslátt. 
 
„Eitt félagið fer af stað með þessa hugmynd og öll hin elta. Það er engin tenging við markaðinn hvernig okkur gengur í handbolta eða fótbolta eða júróvisjón. Það er bara tenging við heimsmarkaðsverð og það sem við borgum fyrir lítrann. Við auðvitað búum við það, sem neytendur hér á landi, að vera að borga 10 til 20 krónum hærra verð fyrir hvern lítra vegna aukinnar álagningar hér á markaði,“ segir Runólfur.

Frá því í október hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað um tæp 24 prósent. Á sama tíma hefur eldsneytisverð á Íslandi lækkað um tæp 6 prósent. Álagning olíufélagana hefur aukist um 3 prósent. „Hver króna sem menn eru að skila til sjálfs síns í formi aukinnar álagningar, það skilar sér í 360 milljónum króna upp úr vasa neytenda á einu ári ef við hugsum þetta yfir eitt ár,“ segir Runólfur. Að hans mati er hegðun olíufélaga á markaði einsleit og þau sjái ekki hag í samkeppni um viðskiptavini. 

Þetta hafi verið greinilegt síðla hausts, markaðsverð hafi hækkað en svo snarlækkað á haustmánuðum og engin olíufyrirtækjanna hafi tekið sér varðandi það fyrr en FÍB og fjölmiðlar, meðal annarra, fóru að vekja athygli á því að virkilega væri lag til lækkunar. „Stundum getur samráð verið án þess að menn hittist í Öskjuhlíð, það er bara sannleikur.“