Tap sjóðanna nálægt meðaltali OECD

Í skýrslunni um lífeyrissjóðina er tap þeirra sagt nálægt 480 milljörðum króna.

Landssamtök lífeyrissjóða harma þá skerðingu á lífeyrisgreiðslum og réttindum sem sjóðsfélagar margra lífeyrissjóða hafa mátt þola. Þetta kemur fram í yfirlýsingu samtakanna.

Þau segi að heildartap sjóðanna við bankahrunið haustið 2008 sé 380 milljarðar króna, en ekki tæpir 480 milljarðar eins og haldið sé fram í nýútkominni úttektarskýrslu. Mismunurinn helgast af ólíkum viðmiðunartímabilum. Engu að síður sé tapið mikið. Íslensku lífeyrissjóðirnir séu þó ekki þeir einu sem urðu áfalli. Þegar fjármálakreppan reið yfir urðu allir lífeyrissjóðir OECD-ríkjanna fyrir miklu tjóni. Tap íslensku lífeyrissjóðanna sé nálægt meðaltali þess sem varð hjá lífeyrissjóðum OECD-ríkja.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku