Stúdentar fagna Fullveldisdeginum

Fullveldisdagurinn er haldinn hátíðlegur víða en að venju hafa stúdentar við Háskóla Íslands daginn í heiðri með sérstakri dagskrá. Nú er jafnframt 100 ára afmælisár skólans svo hátíðahöldin eru veglegri í ár en oft áður, en stúdentar hafa haldið upp á Fullveldisdaginn frá árinu 1922.
Dagskráin hefst að venju með því að stúdentar leggja blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði, að viðstöddum forseta Íslands og rektor háskólans. Að því loknu halda guðfræðinemar messu í Háskólakapellunni.
Þá verður hátíðardagskrá á Háskólatorgi, þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ávarpar gesti, námsstyrkir verða afhentir og Gleðisveit Lýðveldisins tekur lagið.
Í tilefni af aldarafmæli skólans opnar Stúdentaráð í dag vefsíðu þar sem safna á minningum stúdenta Háskóla Íslands fyrr og nú og eru fyrrverandi og núverandi nemendur við Háskóla Íslands hvattir til að rita þar minningar og vangaveltur sínar um stofnunina og skólaárin þar.
Í dag verður jafnframt í fyrsta sinn haldin sérstök Hátíð brautskráðra doktora en þar munu þeir doktorsnemar sem varið hafa ritgerðir á árinu taka við gullmerki háskólans, að viðstöddum forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðherra, rektor, forsetum fræðasviða og deildarforsetum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







