Stefna á 35 milljónir í Mottumars

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu mættu slökkviliðsmönnum í sundknattleik í dag. Viðureignin markaði upphaf Mottumars.
Mottumars fjáröflunarátaki Kabbameinfélagsins var ýtt úr vör í dag en þetta er í fimmta sinn sem félagið stendur fyrir sérstöku átaki um karlmenn og krabbamein og í þriðja sinn sem karlar eru hvattir til að safna yfirvaraskegggi og styrkáheitum.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins segir að félagið stefni að því að safna 35 milljónum króna í mars.
„Við setjum markmiðið mjög hátt skal viðurkennt. Við munum fyrst gera þetta með því að safna áheitum á netinu svo það er um að gera að hvetja fólk til að leggja þar sitt að mörkum en líka með alskyns öðrum uppátækjum,“ segir Ragnheiður en söfunin tekur einning á sig aðrar myndir.
„Margir hafa búið til vörur fyrir okkur að eigin frumkvæði og selja og gefa okkur hluta af ágóða og svo eru skemmtanir og allskyns uppákomur út allan mars. Það er orðið þannig að mottumars er bara skemmtilegur frá upphafi til enda.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













