Spáir 32 stiga frosti við Mývatn

Kuldaboli bítur landsmenn þessa dagana en hvergi þó jafn hressilega og við Mývatn. Þar mældist 27,3 stiga frost í nótt og er spáð enn meira frosti á hádegi, 32 stigum.

Á Torfum í Eyjafjarðardal mældist 23 stiga frost og 22,7 stiga frost mældist á Hólasandi. Hitastigið þokaðist yfir frostmark á stöku stað en reis ekki mikið. Mesti hiti mældist í Surtsey, 1,3 gráður.

„Í nótt fór frostið í 27,3 stig á Mývatni. Það er með kaldara móti, en ekki einsdæmi,“ segir Haraldur Ólafsson veðurfræðingur. „22. desember í fyrra var 28,6 stiga frost á Mývatni og 7. febrúar 2009 fór frostið í 27,5 stig.“ Á vef Veðurstofunnar sést að spáð er 32 stiga frosti á hádegi.

„Mjög kalt heimskautaloft er yfir landinu og víða hörkufrost, en til að ná fram þeim mikla kulda sem er við Mývatn þarf að vera stilla og léttskýjað. Þá myndast mjög kalt loftlag niðri við jörð. Dálítill vindur getur hrært upp í loftinu og þá getur frostið minnkað niður í 15-20 stig á skömmum tíma. Eins og gefur að skilja verða frostspár harla ónákvæmar við þannig aðstæður,“ segir Haraldur. „Áfram verður frost. Á Mývatni verður það líklega vægara en í dag, en víða annars staðar kólnar líklega frá því sem er í dag.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku