Sofa með munntóbak undir vörinni



  • Prenta
  • Senda frétt

Nemendur allt niður í sjöunda bekk taka í vörina í Grunnskólum Árborgar. Tannlæknir á Selfossi óttast að tíðni munnkrabbameins muni aukast mikið hér á landi samhliða sífellt meiri munntóbaksneyslu

Hallur Halldórsson, tannlæknir á Selfossi óttast að tíðni munnkrabbameins muni aukast mikið hér á landi samhliða sífellt meiri notkun á munntóbaki hjá báðum kynjum. Þá segir hann að þeir sem nota tóbakið mest sofi á nóttunni með það undir vörinni. Nemendur allt niður í sjöunda bekk í Grunnskólum Árborgar nota munntóbak.

Í Sveitarfélaginu Árborg starfar forvarnarhópur, sem stóð fyrir fræðslufundi í vikunni um skaðsemi munn- og neftóbaksneyslu en dæmi er um að nemendur allt niður í 7. bekk séu að taka í vörina. Hallur Halldórsson, tannlæknir hefur áhyggjur af stöðu málsins enda óttast hann að munnkrabbamein muni aukast mikið á næstum árum.

„Dánartíðni hjá einstaklingum, sem fá krabbamein í munni er mjög há því þar eru fimm ára lífslíkur ekki nema um 37% og lífsgæði þessa einstaklinga er verulega skert eftir aðgerðir á andliti og kjálka," segir Hallur.

Það eru ekki bara unglingspiltar og karlmenn sem taka í vörina því Hallur segir að unglingsstelpur og konur á besta aldri taki einnig í vörina.

„Já, það hefur verið aukning á því og vonandi förum við ekki í sama farið og í Svíþjóð. Þar eru stelpur í miklu mæli að nota munntóbak, eða um 6%."
Hallur segir að dæmi séu um að fólk sofi með tóbak undir vörinni. „Það er farið að sýna sig að þeir sem nota þetta að staðaldri leita eftir aukinni tilfinningu af efninu og daglega notkunin er ekki farin að vera nóg þannig að menn eru farnir að setja undir vörina fyrir svefninn."

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku