„Við höfum mikið skýrari mynd um afstöðu Samtaka atvinnulífsins og þeirra sýn á þessar kjaraviðræður og okkar kröfur,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í hádeginu að loknum fundi með Samtökum Atvinnulífsins hjá Ríkissáttasemjara.

Ragnar sagði á mánudag að ef ekki næðist árangur á þessum fundi yrði skoðað alvarlega að slíta viðræðum. Er þetta komið á það stig? „Ég kallaði eftir því og við hópurinn að við færum að heyra eitthvað. Fá afstöðu okkar viðsemjenda gagnvart okkar kröfugerð, sem hefur ekki legið i rauninni fyrir, efnislega. Ef það myndi ekki gerast að þá myndum við grípa til einhverra aðgerða eins og til dæmis að slíta. Svo verður ekki. Við erum búin að fá afstöðu okkar viðsemjenda. Það munum við fara með í okkar bakland og við munum greina frá því og síðan líka greina þessa afstöðu.“

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði að loknum fundi að meðal annars hefði verið farið yfir kostnaðarmat kröfugerðanna og mögulegt svigrúm atvinnulífsins til launahækkana. Það væri góðs viti að viðræður væru enn í gangi. Annar fundur hefur verið boðaður í næstu viku.

 

Jóhann Bjarni Kolbeinsson fréttamaður ræddi við Ragnar Þór Ingólfsson að loknum fundi. Hægt er að horfa á það í spilaranum hér fyrir ofan.