Sjálfstæðisflokkur með 38% fylgi
Fyrst birt: 01.12.2011 18:12, Síðast uppfært: 01.12.2011 20:40

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um tvö prósentustig í nóvember og mælist nú 38 prósent samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn hefur ekki mælst með meiri stuðning síðan í febrúar 2008, nokkru fyrir hrun.
Um 22 prósent kjósenda styðja Samfylkinguna og tæp fimmtán prósent styðja Framsóknarflokkinn. 13,5 prósent styðja Vinstri hreyfinguna grænt framboð en stuðningur við þann flokk hefur ekki mælst minni síðan í júlí árið 2007. Einungis tvö prósent styðja Hreyfinguna. Hins vegar segjast tíu prósent myndu styðja önnur framboð og fimmtán prósent myndu skila auðu eða sleppa því að kjósa.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







