Sendiherra Breta kvaddur heim
Fyrst birt: 06.02.2012 16:22, Síðast uppfært: 06.02.2012 16:22

Frá mótmælaaðgerðum í Damaskus. Mynd: Nordic Photos/AFP
Breska stjórnin kallaði í dag sendiherra sinn í Sýrlandi heim til skrafs og ráðagerða. Þetta gerðist nokkru eftir að stjórnvöld í Washington tilkynntu að bandaríska sendiráðinu í Damaskus hefði verið lokað og sendiráðsstarfsmennirnir fluttir heim í öryggisskyni.
Þjóðarráðið í Sýrlandi skoraði í dag á Sýrlendinga að standa fyrir mótmælafundum utan við sendiráð landsins um allan heim til að vekja athygli á hernaðaraðgerðum stjórnvalda gegn andstæðingum stjórnarinnar. Þjóðarráðið sakar ráðamenn í Damaskus um að standa að þjóðarmorði í borginni Homs.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







