Selja til að lána Orkuveitunni

Borgarbyggð hefur selt Reykjavíkurborg 0,7044% hlut í Faxaflóahöfnum til að eiga fyrir sínum hluta í láni til Orkuveitunnar. Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur ákvaðu í fyrra að lána Orkuveitunni 12 milljarða króna. Borgarbyggð á 1% í Orkuveitunni og nam hlutur hennar í láninu 75 milljónum króna.

Borgarbyggð skuldar hins vegar mikið og nema skuldirnar 175% af tekjum sveitarfélagsins. Borgarbyggð gat því illa fjármagnað sinn hluta lánsins. Um tíma kom jafnvel til greina að Reykjavík og Akranes myndu kaupa hlut Borgarbyggðar í Orkuveitunni að því er fram kom í fréttum. Af því verður hins vegar ekki því Reykjavíkurborg greiðir Borgarbyggð 75 milljónir króna fyrir hlutann í Faxaflóahöfnum sem Borgarbyggð ætlar að nota til að fjármagna lánið til Orkuveitunnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku