Sækja slasaðan mann á hálendið

Mynd úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið upp á Sprengisand að sækja slasaðan ferðamann. Maðurinn, sem er breskur, er við Vegamótavatn milli Hofsjökuls og Fjórðungsöldu. Hann er talinn handleggsbrotinn. Björgunarsveitir í Eyjafirði hafa verið kallaðar út og eru komnar áleiðis.
Maðurinn er einn á ferð og hugðist ganga á skíðum frá Akureyri til Víkur í Mýrdal. Hann hefur náð að slá upp tjaldi og er þokkalega haldinn að sögn björgunarsveitarmanna sem hafa rætt við hann. Fjórir bílar og fjórir vélsleðar eru á leið á slysstað og er gert ráð fyrir að ferðin taki nokkrar klukkustundir. Samkvæmt upplýsingum frá jeppamönnum sem voru á ferð á svæðinu í gær er færðin þung fyrir bíla en ágæt fyrir sleða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







