Rúmur milljarður í þróunarsjóð EFTA

Framlag Íslands í þróunarsjóð EFTA árið 2011 nam 1255 milljónum króna. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur og lagt var fram á Alþingi í gær.

 Fram kemur í svarinu að framtíðin sé óráðin fram yfir 2014 þar sem samningastímabilið spanni einungis 2009 til 2014.  Hlutfall Íslands í heildarframlagi er reiknað fyrir hvert ár sem tekur breytingum í takt við landsframleiðslu. Miðað við þann góða gang sem sé kominn í efnahagslíf landsmanna og væntingar um aukna landsframleiðslu megi gera ráð fyrir að heildarframlag Íslands á áðurnefndu tímabili geti numið 5,2 milljörðum króna á núverandi gengi. Umsamið hámark, sem Ísland greiðir er þó 5,4 milljarðar, svo Ísland greiðir aldrei hærri upphæð en sem því nemur. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku