Reyndu að stöðva bílþjóf

Bifreið af gerðinni Nissan Qashqai eins og sá sem stolið var.
Uppnám varð á bílaplani bílasölunnar Bílfangs á Höfða um þrjúleytið í dag. Ökumaður ók stolnum bíl inn á planið en áttaði sig ekki á því að eigandi bílsins veitti honum eftirför.
Eigandinn gerði tilraun til að rífa bílhurðina upp til þess að stöðva ökumanninn. Hann gaf hins vegar hressilega í svo eigandinn hentist frá bílnum. Starfsmenn bílasölunnar gengu í veg fyrir bílinn til að stöðva ökumanninn sem gaf þá aftur í svo lá við að hann keyrði yfir einn þeirra. Engan sakaði þó. Bílnum var stolið fyrir nokkrum dögum. Hann er af gerðinni Nissan Qashqai, árgerð 2007 og er steingrár. Ökumaðurinn er gráhærður karlmaður á sextugsaldri. Lögreglan rannsakar málið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







