Ræða orkusölu til Evrópu

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ræðir orkusölu um sæstreng á ársfundi Landsvirkjunar á morgun.
Orkusala til Evrópu verður aðal umfjöllunarefni ársfundar Landsvirkjunar sem haldinn verður á morgun. Mikill áhugi er á verkefninu meðal ráðamanna á meginlandinu. Ráðherra orkumála í Bretlandi kemur hingað í næsta mánuði til að ræða málið.
Landsvirkjun hefur lengi skoðað þann möguleika að leggja sæstreng til Evrópu - tæknilega hefur það verið framkvæmanlegt um langt skeið, en ekki talið hagkvæmt. Nú virðist annað hljóð vera komið í strokkinn. Margt bendir til að svona framkvæmd gæti borgað sig upp á tiltölulega skömmum tíma - til dæmis vegna þess að verðmæti umhverfisvænnar orku hefur aukist í Evrópu.
Talsverður áhugi virðist vera fyrir þessu verkefni í nokkrum Evrópulöndum, þar á meðal Þýskalandi, Hollandi og Bretlandi og reyndar er breski orkumálaráðherrann, Charles Hendry, væntanlegur hingað til lands í næsta mánuði til að ræða þetta; hann hitti reyndar Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar í vetur, þar sem þetta mál bar á góma. Hörður mun fjalla um þetta verkefni á ársfundi Landsvirkjunar á morgun og í framhaldinu má búast við að pólitísk stefnumótun fari af stað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













