Óvænt heimafæðing

Mynd: NordicPhotos/Getty Images
Tveir sjúkraflutningamenn tóku á móti sveinbarni sem lá á að komast í heiminn á tólfta tímanum í gærkvöldi. Óskað var eftir sjúkrabíl í Teigahverfið í Reykjavík, þar sem kona var um að bil að fæða sitt þriðja barn og þurfti að komast á fæðingardeild.
Sjúkraflutningamennirnir komust hins vegar rétt svo inn úr dyrunum áður en drengurinn fæddist.
Móður og barni heilsaðist vel og sinntu sjúkraflutningamennirnir þeim þar til ljósmóðir frá fæðingardeildinni mætti á staðinn, þar sem ekki þótti lengur ástæða til að flytja móðurina á sjúkrahús.
Þeir hafa áður tekið á móti barni en að sögn vaktmanns hjá slökkviliðinu þykir sjúkraflutningamönnum svona útköll alltaf skemmtileg.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







